11. (981). fundur
11. (981). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.08.2026
Kl. 17:00 - 18:20
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Stella Stefánsdóttir - bæjarfulltrúi
- Birkir Guðlaugsson - bæjarfulltrúi
- Ýmir Örn Finnbogason - varabæjarfulltrúi
- Anna Ragnheiður Möller - forseti bæjarstjórnar
- Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Anna Ragnheiður Möller, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði. Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. júní 2026 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 23/6 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl. fyrirspurn Garðabæjarlistans um umferðaröryggi.
Fundargerðin sem er 5.tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 30/6 ´26.
Björg Fenger ræddi 3.tl. erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi samkomulag um þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Lagði Björg til að bókun bæjarráðs yrði tekin upp í fundargerð bæjarstjórnar:
"Bæjarráð tekur undir afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga og lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.
Bæjarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Bæjarráð skorar á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taka þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um."
Almar Guðmundsson ræddi 7.tl. innritun nemenda úr Garðaskóla í framhaldsskóla.
Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð bæjarráðs frá 7/7 ´26.
Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.
04
Fundargerð bæjarráðs frá 21/7 ´26.
Björg Fenger ræddi 15.tl. fundargerð stjórnar SSH frá 6. júlí 2026.
Almar Guðmundsson ræddi 10.tl. samning um þjónustumiðstöð GKG. Óskaði Almar, f.h. bæjarstjórnar, GKG til hamingju með að Íslandsmótið í golfi verði haldið á Leirdalsvelli GKG sumarið 2027.
Fundargerðin sem er 22.tl. er samþykkt samhljóða.
05
Fundargerð bæjarráðs frá 11/8 ´26.
Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.
06
Fundargerð bæjarráðs frá 18/8 ´26.
Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
6.2 - 2607298 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Borgarás 10 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarheimild fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Borgarási 10 sem gerir ráð fyrir útitröppum við norðvesturgafl hússins. Skipulagsnefnd mat umsóknina sem óverulega breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit sem nemur flatarmáli útitröppu. Þar sem að deiliskipulagsuppdráttur Hraunsholts vestra sýnir útlínur húsa að Borgarási 10 og 12 lýtur nefndin svo á að um ígildi byggingarreits sé að ræða. Útbúa skal breytingaruppdrátt deiliskipulags sem sýnir stækkaðan byggingarreit sem nemur útlínum hússins til norðvestur auk útitröppu eins og umsóknaruppdrættir sýna. Skipulagsnefnd vísaði umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Fylgiskjöl
6.5 - 2608149 - Gjaldskrá fyrir frístundabíl Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að gjaldskrá fyrir frístundabíl fyrir haustönn 2026. Lagt er til að gjaldskráin verði óbreytt út árið og verði kr. 9.900. Breytingin tekur gildi 1. september 2026.
Fylgiskjöl
07
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 24/6 ´26.
Almar Guðmundsson tók til máls og óskaði, f.h. bæjarstjórnar, Óliver Elí Björnssyni til hamingju með glæsilegan sigur á opna breska áhugamannamóti pilta í golfi.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 3.tl. samning um viðtalstíma Bergsins í Torginu ungmennahúsi.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð leikskólanefndar frá 25/6 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. störf leikskólanefndar 2022-2026 - samantekt.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð leikskólanefndar frá 12/8 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. lykiltölur í skólamálum og 2.tl. verklag um eftirlit með sjálfstætt starfandi leikskólum - drög.
Fundargerðin er lögð fram.
11
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 24/6 ´26.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. verkefni skólanefndar og 2.tl. störf skólanefndar 2025-2026 - samantekt.
Fundargerðin er lögð fram.
12
Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/7 ´26.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. snyrtilegt umhverfi 2026.
Fundargerðin er lögð fram.
13
Fundargerð velferðarráðs frá 19/6 ´26.
Anna Ragnheiður Möller ræddi 1.tl. verkefni Velferðarsviðs og Velferðarráðs Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
14
Tillaga Samfylkingar, Garðabæjarlista og Framsóknar um árlega bæjarhátíð í Garðabæ.
Kjartan Atli Kjartansson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að undirbúin verði árleg bæjarhátíð í Garðabæ. Leitað verði til íbúa við mótun hátíðarinnar, meðal annars um þema og útfærslu hennar."
Greinargerð:
"Garðabær er ört stækkandi bæjarfélag með þrjá byggðarkjarna; Garðabæ, Urriðaholt og Álftanes. Með vexti samfélagsins er mikilvægt að huga að bæjarbrag og skapa vettvang sem sameinar íbúa og styrkir sameiginlega tilfinningu fyrir samfélaginu.
Því er lagt til að haldin verði árleg bæjarhátíð í Garðabæ. Slík hátíð er til þess fallin að styrkja tengsl íbúa með því að skapa sameiginlegan vettvang til skemmtunar, samveru og gleði.
Undanfarin misseri hefur afmælisnefnd Garðabæjar skipulagt fjölda viðburða í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins. Hápunktur afmælisársins verður 29. ágúst þegar afmælishátíð Garðabæjar verður haldin. Nefndin hefur með þessu unnið mikilvæga grunnvinnu og skapað reynslu og þekkingu sem hægt væri að byggja á við undirbúning árlegrar bæjarhátíðar. Einnig væri vert að líta til Jazzþorpsins í Garðabæ, sem er gott dæmi um vel heppnaðan árlegan viðburð sem hefur skapað sér sterka sérstöðu og laðar íbúa saman í kringum tónlist og menningu. Sú árlega bæjarhátíð sem hér er lagt til að verða sett á laggirnar, væri öðruvísi í sniðum og væri markmiðið að báðir þessir árlegu viðburðir næðu að þrífast og dafna.
Lagt er til að leitað verði til íbúa við mótun bæjarhátíðarinnar, meðal annars þegar kemur að þema, innihaldi og útfærslu hennar. Með því verði tryggt að hátíðin endurspegli vilja og hugmyndir íbúa og verði þannig sameiginlegt verkefni samfélagsins. Þetta er jafnframt í samræmi við þá aðferð sem afmælisnefnd Garðabæjar hefur beitt við skipulagningu afmælishátíðarinnar.
Markmiðið er að skapa árlega hefð sem sameinar íbúa ólíkra byggðarkjarna, styrkir bæjarbraginn og eflir samfélagsanda í Garðabæ.
Kjartan Atli Kjartansson
Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Hlynur Bæringsson."
Björg Fenger tók til máls og lagði til að tillögunni yrði vísað til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Ýmir Örn Finnbogason tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd.
15
Tillaga Garðabæjarlista, Samfylkingar og Framsóknar um hækkun hvatapeninga og undirbúning systkinaafsláttar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að gert verði ráð fyrir hækkun hvatapeninga barna í 80 þúsund krónur í fjárhagsáætlun ársins 2027.
Einnig felur bæjarstjórn fræðslu- og frístundasviði að hefja undirbúning að því að hægt verði að veita systkinaafslátt í gegnum hvatapeningakerfið, m.ö.o. aukinn hvatapening fyrir barnmargar fjölskyldur."
Greinargerð:
"Þátttaka í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi hefur, ásamt því að vera mikilvægur vettvangur fyrir félagslegan þroska barna og heilsu, gríðarlegt forvarnargildi. Því er samfélagslega mikilvægt að allar fjölskyldur geti boðið börnum sínum upp á að stunda slíkt starf, óháð efnahag. Fjárhagslegt aðgengi að íþróttum og tómstundum er sérstaklega aðkallandi vegna þrengri fjárhagsstöðu heimila.
Garðabær hefur fjárfest milljörðum í aðstöðu til íþrótta- og æskulýðsstarfs auk tónlistarnáms og ber töluverðan kostnað af rekstri þeirra mannvirkja á ári hverju. Öll börn eiga að geta notið þeirra gæða sem við höfum byggt upp saman.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans
Kjartan Atli Kjartansson, bæjarfulltrúi Samfylkingar
Hlynur Bæringsson, bæjarfulltrúi Framsóknar"
Birkir Guðlaugsson tók til máls og lagði til að tillögunni yrði vísað til umfjöllunar og skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2027.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Hlynur Bæringsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar og skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2027.