Beint í efni

Tillaga Samfylkingar, Garðabæjarlista og Framsóknar um árlega bæjarhátíð í Garðabæ.

Málsnúmer 2608229

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (981). fundur

Kjartan Atli Kjartansson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að undirbúin verði árleg bæjarhátíð í Garðabæ. Leitað verði til íbúa við mótun hátíðarinnar, meðal annars um þema og útfærslu hennar."

Greinargerð:

"Garðabær er ört stækkandi bæjarfélag með þrjá byggðarkjarna; Garðabæ, Urriðaholt og Álftanes. Með vexti samfélagsins er mikilvægt að huga að bæjarbrag og skapa vettvang sem sameinar íbúa og styrkir sameiginlega tilfinningu fyrir samfélaginu.

Því er lagt til að haldin verði árleg bæjarhátíð í Garðabæ. Slík hátíð er til þess fallin að styrkja tengsl íbúa með því að skapa sameiginlegan vettvang til skemmtunar, samveru og gleði.

Undanfarin misseri hefur afmælisnefnd Garðabæjar skipulagt fjölda viðburða í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins. Hápunktur afmælisársins verður 29. ágúst þegar afmælishátíð Garðabæjar verður haldin. Nefndin hefur með þessu unnið mikilvæga grunnvinnu og skapað reynslu og þekkingu sem hægt væri að byggja á við undirbúning árlegrar bæjarhátíðar. Einnig væri vert að líta til Jazzþorpsins í Garðabæ, sem er gott dæmi um vel heppnaðan árlegan viðburð sem hefur skapað sér sterka sérstöðu og laðar íbúa saman í kringum tónlist og menningu. Sú árlega bæjarhátíð sem hér er lagt til að verða sett á laggirnar, væri öðruvísi í sniðum og væri markmiðið að báðir þessir árlegu viðburðir næðu að þrífast og dafna.

Lagt er til að leitað verði til íbúa við mótun bæjarhátíðarinnar, meðal annars þegar kemur að þema, innihaldi og útfærslu hennar. Með því verði tryggt að hátíðin endurspegli vilja og hugmyndir íbúa og verði þannig sameiginlegt verkefni samfélagsins. Þetta er jafnframt í samræmi við þá aðferð sem afmælisnefnd Garðabæjar hefur beitt við skipulagningu afmælishátíðarinnar.

Markmiðið er að skapa árlega hefð sem sameinar íbúa ólíkra byggðarkjarna, styrkir bæjarbraginn og eflir samfélagsanda í Garðabæ.

Kjartan Atli Kjartansson

Þorbjörg Þorvaldsdóttir

Hlynur Bæringsson."

Björg Fenger tók til máls og lagði til að tillögunni yrði vísað til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Ýmir Örn Finnbogason tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd.