Tillaga Garðabæjarlista, Samfylkingar og Framsóknar um hækkun hvatapeninga og undirbúning systkinaafsláttar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (981). fundur
Þorbjörg Þorvaldsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að gert verði ráð fyrir hækkun hvatapeninga barna í 80 þúsund krónur í fjárhagsáætlun ársins 2027.
Einnig felur bæjarstjórn fræðslu- og frístundasviði að hefja undirbúning að því að hægt verði að veita systkinaafslátt í gegnum hvatapeningakerfið, m.ö.o. aukinn hvatapening fyrir barnmargar fjölskyldur."
Greinargerð:
"Þátttaka í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi hefur, ásamt því að vera mikilvægur vettvangur fyrir félagslegan þroska barna og heilsu, gríðarlegt forvarnargildi. Því er samfélagslega mikilvægt að allar fjölskyldur geti boðið börnum sínum upp á að stunda slíkt starf, óháð efnahag. Fjárhagslegt aðgengi að íþróttum og tómstundum er sérstaklega aðkallandi vegna þrengri fjárhagsstöðu heimila.
Garðabær hefur fjárfest milljörðum í aðstöðu til íþrótta- og æskulýðsstarfs auk tónlistarnáms og ber töluverðan kostnað af rekstri þeirra mannvirkja á ári hverju. Öll börn eiga að geta notið þeirra gæða sem við höfum byggt upp saman.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans
Kjartan Atli Kjartansson, bæjarfulltrúi Samfylkingar
Hlynur Bæringsson, bæjarfulltrúi Framsóknar"
Birkir Guðlaugsson tók til máls og lagði til að tillögunni yrði vísað til umfjöllunar og skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2027.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Hlynur Bæringsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar og skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2027.