27. (2222). fundur
27. (2222). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
18.08.2026
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Vorbraut 8 - 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 66012-0470, heimild fyrir stækkun á geymslurými í kjallara fjölbýlishúss að Vorbraut 8.
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Borgarás 10 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarheimild fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Borgarási 10 sem gerir ráð fyrir útitröppum við norðvesturgafl hússins.
Skipulagsnefnd mat umsóknina sem óverulega breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit sem nemur flatarmáli útitröppu. Þar sem að deiliskipulagsuppdráttur Hraunsholts vestra sýnir útlínur húsa að Borgarási 10 og 12 lýtur nefndin svo á að um ígildi byggingarreits sé að ræða. Útbúa skal breytingaruppdrátt deiliskipulags sem sýnir stækkaðan byggingarreit sem nemur útlínum hússins til norðvestur auk útitröppu eins og umsóknaruppdrættir sýna.
Skipulagsnefnd vísaði umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
03
Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja fyrir KNTO ehf. Kauptúni 6.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að KNTO ehf., kt. 480726-0300, Kauptúni 6, Garðabæ, verði veitt starfsleyfi til að starfrækja útibú ökutækjaleigu að Kauptúni 6 með allt að 40 bifreiðum, en um er að ræða starfsemi á vegum Toyota á Íslandi.
04
Tillaga að gjaldskrá matjurtagarða í ársútleigu 2026-2027.
Bæjarráð samþykkir tillögu garðyrkjustjóra að gjaldskrá fyrir matjurtargarða í ársútleigu 2026-2027. Leiga fyrir ársútleigu frá 20. september 2026 til 15. september 2027 verði kr. 11.000 pr. kassa.
Fylgiskjöl
05
Gjaldskrá fyrir frístundabíl Garðabæjar.
Tillaga um gjaldskrá fyrir frístundabíl fyrir haustönn 2026 lögð fram.
Lagt er til að gjaldskráin verði óbreytt út árið og verði kr. 9.900.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
06
50 ára afmæli Garðabæjar 2026.
Sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs gerði grein fyrir dagskrá í tilefni að 50 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar.
Afmælishátíð verður haldin laugardaginn 29. ágúst 2026 á Garðatorgi.
07
Tillaga umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2026.
Fyrirhugað er að veita aðilum viðurkenningar við athöfn í Sveinatungu þriðjudaginn 25. ágúst nk. kl. 17:00.