Beint í efni

Tillaga umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi.

Málsnúmer 2606129

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

27. (2222). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2026.

Fyrirhugað er að veita aðilum viðurkenningar við athöfn í Sveinatungu þriðjudaginn 25. ágúst nk. kl. 17:00.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

2 (26-30). fundur

Umhverfisnefnd fór í vettvangsferð um Garðabæ og skoðaði lóðir og svæði vegna vals á snyrtilegu umhverfi árið 2026. Nefndin fór yfir þau svæði og lóðir sem komu til skoðunar og lagði mat á snyrtimennsku, frágang og heildaryfirbragð. Nefndin komst að niðurstöðu um val á snyrtilegu umhverfi árið 2026 og mun leggja fram tillögur til samþykktar hjá bæjarráði.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

1 (26-30). fundur

Umhverfisnefnd leggur til að óskað verði eftir ábendingum íbúa vegna snyrtilegra garða, snyrtilegra fyrirtækjalóða, snyrtilegra gatna, skemmtilegra opinna svæða ásamt ábendingum fyrir framlag til umhverfismála.