Beint í efni

1 (26-30). fundur

16.06.2026
Umhverfisnefnd Garðabæjar

1 (26-30). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

16.06.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jón Þór Eggertsson - formaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Ingibjörg Loftsdóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Anna Gréta Hafsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2606274

01

Verkefni Umhverfisnefndar

Verkefni Umhverfisnefndar kynnt.

Málsnúmer 2604141

02

Hreinsunarátak 2026

Árlegt hreinsunarátak var haldið dagana 20.apríl - 4.maí. fjörtíu og fjórir hópar fengu úthlutuð svæði til að hreinsa í nærumhverfi sínu. Umhverfisnefnd vill koma fram þökkum til allra þeirra sem tóku þátt.

Málsnúmer 2604142

03

Vorhreinsun lóða 2026

Vorhreinsun lóða í Garðabæ fór fram dagana 8.-26 maí. Ríflega 30 gámum var komið fyrir í bænum til að taka á móti garðaúrgangi sem íbúar komu sjálfir í gámana. Fjöldi gáma endurspeglar þann mikla dugnað sem Garðbæingar hafa sýnt í vorhreinsun sinni. Vegna góðra undirtekta voru 10 gámar áfram aðgengilegir á völdum stöðum til 29. maí.

Málsnúmer 2604143

04

Mengunarmælingar 2026

Lagt fram.

Málsnúmer 2605278

05

Evrópsk samgönguvika 2026

Frá árinu 2002 hafa borgir og bæir á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Yfirskrift átaksins er Evrópsk Samgönguvika og er hún haldin 16.-22. september ár hvert. Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Þema samgönguviku í ár er Samgöngur fyrir öll

Málsnúmer 2606129

06

Snyrtilegt umhverfi 2026

Umhverfisnefnd leggur til að óskað verði eftir ábendingum íbúa vegna snyrtilegra garða, snyrtilegra fyrirtækjalóða, snyrtilegra gatna, skemmtilegra opinna svæða ásamt ábendingum fyrir framlag til umhverfismála.