50 ára afmæli Garðabæjar 2026
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (971). fundur
Almar Guðmundsson tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls.
Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls.
Bæjarstjórn óskar Ungmennafélagi Álftaness til hamingju með 80 ára afmæli félagsins, sem stofnað var þann 6. janúar 1946.
Bæjarráð Garðabæjar
02
41. (2189). fundur
Lagðar fram til kynningar tillögur afmælisnefndar Garðabæjar vegna 50 ára kaupstaðarafmælis Garðabæjar 2026. Verkefni afmælisnefndar og verkefnahóps var að undirbúa afmælisárið og leggja fram drög að dagskrá afmælisársins. Lagði afmælisnefndin upp úr því að virkja samfélagið (íbúa, stofnanir, skóla, félagasamtök fyrirtæki o.s.frv.) til að taka þátt í dagskrá afmælisársins og/eða tengja hefðbundna viðburði í bænum afmælisárinu.
Bæjarráð þakkar afmælisnefndinni góða vinnu. Bæjarráð samþykkir tillögu afmælisnefndar að skipað verði framkvæmdaráð til að útfæra nánar dagskrá afmælisársins og hafa umsjón með framkvæmd einstakra dagskrárliða. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til frekari úrvinnslu.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
03
34. fundur
Garðabær fagnar 50 ára afmæli 2026 og kallað er eftir hugmyndum um hvernig gera má afmælisárið sem eftirminnilegast. Nefndin ræddi nokkrar áhugaverðar hugmyndir og kom þeim á framfæri við samskiptastjóra bæjarins
Velferðarráð Garðabæjar
04
9. fundur
Til umræðu
Umræða um 50 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar árið 2026.
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
34. fundur
Garðabær fagnar 50 ára afmæli 2026 og kallað er eftir hugmyndum um hvernig gera má afmælisárið sem eftirminnilegast. Nefndin ræddi nokkrar áhugaverðar hugmyndir.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
06
29 (22-26). fundur
Árið 2026 fagnar Garðabær 50 ára afmæli sínu. Hálfri öld af góðu samfélagi. Garðabær vill halda upp á tímamótin með fjölbreyttum hætti yfir allt árið og bjóðum öllum íbúum að vera með í skipulaginu.
Afmælisnefnd Garðabæjar leitar því til íbúa og nefnda bæjarins og kallar eftir hugmyndum að viðburðum, uppákomum eða öðrum skemmtilegum atriðum sem gætu gert afmælisárið enn eftirminnilegra.
https://www.gardabaer.is/stjornsysla/utgefid-efni/frettir/hvad-langar-thig-ad-sja-i-50-ara-afmaelisveislu-gardabaejar
Lagt fram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
9. (961). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og kynnti tillögu um afmælisnefnd og verkefnahóp í tilefni af 50 ára afmælinu.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Margrét Bjarnadóttir ber upp eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna eftirfarandi aðila í afmælisnefnd vegna 50 ára kaupstaðaafmælis Garðabæjar 2026:
Gunnar Valur Gíslason (D) formaður
Guðfinnur Sigurvinsson (D)
Andrea Gunnarsdóttir (D)
Þorbjörg Þorvaldsdóttir (G)
Guðlaugur Kristmundsson (C)
Tillagan er samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
08
22. (2170). fundur
Kynnt minnisblað vegna 50 ára afmælis kaupstaðarréttinda Garðabæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að skipuð verði nefnd sem í sitji 5 aðilar sem bæjarstjórn mun staðfesta á fundi sínum 19. júní 2025. Í nefndinni verða þrír fulltrúar tilnefndir af meirihluta bæjarstjórnar og tveir fulltrúar tilnefndir af minnihluta.
Lagt er til að samhliða skipun nefndar um afmælið verði settur saman verkefnahópur á bæjarskrifstofu Garðabæjar sem hefur umsjón með viðburðahaldi og almennu skipulagi verkefnisins. Hópurinn starfar með undirbúningsnefndinni. Hópurinn mun geta kallað til sín annað starfsfólk af öllum sviðum bæjarins og aðra aðila sér til halds og traust.
Verkefnahópinn skipa:
Lúðvík Örn Steinarsson
Ágúst Þór Guðmundsson
Ólöf Breiðfjörð
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Gunnar Hrafn Gunnarsson
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn staðfesti tilnefningu í undirbúningsnefnd og verkefnahóp á fundi bæjarstjórnar þann 19. júní 2025.