29 (22-26). fundur
29 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
08.10.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026)
tillögur umhverfisnefndar til fjárhagsáætlunar 2026
Umhverfisnefnd leggur fram tillögur til fjárhagsáætlunar 2026.
03
Betri Garðabær - stjörnuskoðunarsvæði
Umhverfisnefnd fagnar tilkomu stjörnuskoðunarsvæðis í Heiðmörk sem hlaut brautargengi í kosningum lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær.
04
Trjálundur við Álftanesveg
Umhverfisnefnd fagnar tilkomu söguskiltis sem sett hefur verið upp við skógarlundinn með myndum og ágripi af upphafi skógræktar kvenfélagsins í lundinum.
05
Myndavélar við Grenndargámar
Settar hafa verið upp eftirlitsmyndavélar við 3 grenndarstöðvar í Garðabæ. Ein við Ásgarð ein við Sjáland og svo ein við Skólabraut.
Settar hafa verið upp eftirlitsmyndavélar við 3 grenndarstöðvar í Garðabæ. Við Ásgarð, Sjáland og við Skólabraut.
06
50 ára afmæli Garðabæjar 2026
Árið 2026 fagnar Garðabær 50 ára afmæli sínu. Hálfri öld af góðu samfélagi. Garðabær vill halda upp á tímamótin með fjölbreyttum hætti yfir allt árið og bjóðum öllum íbúum að vera með í skipulaginu.
Afmælisnefnd Garðabæjar leitar því til íbúa og nefnda bæjarins og kallar eftir hugmyndum að viðburðum, uppákomum eða öðrum skemmtilegum atriðum sem gætu gert afmælisárið enn eftirminnilegra.
https://www.gardabaer.is/stjornsysla/utgefid-efni/frettir/hvad-langar-thig-ad-sja-i-50-ara-afmaelisveislu-gardabaejar
Lagt fram.