Beint í efni

Betri Garðabær - stjörnuskoðunarsvæði

Málsnúmer 2106578

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

29 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd fagnar tilkomu stjörnuskoðunarsvæðis í Heiðmörk sem hlaut brautargengi í kosningum lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

15. (911). fundur

Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir aðstöðu fyrir stjörnuskoðun við bílastæði við Heiðmerkurveg. Staðsetningin er innan friðlýsts svæðis og liggur fyrir samþykki Umhverfisstofnunar með skilyrðum sem koma fram í bréfi, dags. 28. október 2022. (Mál nr. 2106578)

Bæjarráð Garðabæjar

03

39. (2046). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir aðstöðu fyrir stjörnuskoðun við bílastæði við Heiðmerkurveg. Staðsetningin er innan friðlýsts svæðis og liggur fyrir samþykki Umhverfisstofnunar með skilyrðum sem koma fram í bréfi, dags. 28. október 2022.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir aðstöðu fyrir stjörnuskoðun við bílastæði við Heiðmerkurveg sem tengist útivistarstíg að Búrfelli og Búrfellsgjá.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með fyrirvara um samþykki Umhverfisstofnunar þar sem að staðsetningin er innan Friðlands Búrfells, Búrfellsgjár og Selgjár. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði friðlýsingar B-deild Stjórnartíðinda nr.687/25.júní 2020 er Umhverfisstofnun heimilt að veita leyfi fyrir framkvæmdum innan friðlandsins þó svo að deiliskipulag liggi ekki fyrir.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

5 (22-26). fundur

Lagt fram til kynningar.