Melás 8 - Umsókn um byggingarheimild.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
24. (2219). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Davíð Árnasyni, kt. 090886-2909, leyfi til breytingar á þegar byggðu húsi. Breytingin varðar skála/viðbyggingu sem byggð var árið 1990 en þakhalla er breytt og svölum komið yfir. Þá eru einnig breytingar á skipulagi innanhúss, færsla á aðalhurð og skráning klæðningar.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir byggingarreit þar sem nú er einnar hæðar sólskáli við Melás 8.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi 44. gr. sömu laga. Í samræmi við 3. mgr. sömu greinar er tímabil grenndarkynningar stytt þar sem þeir sem grenndarkynningin nær til hafa lýst yfir með undirskrift sinni að þeir gera ekki athugasemdir.
Breytingin skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.