6. fundur
6. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
26.03.2026
Kl. 15:30 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1.áfangi
Sigbjörn Kjartansson og Bæring Bjarnar Jónsson hjá Glámu Kím gerðu grein fyrir drögum að deiliskipulagi 1. áfanga deiliskipulags Vífilsstaða.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
02
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Norðurness að lokinni forkynningu.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
03
Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness að lokinni forkynningu. Björn Guðbrandsson og Edda Kristín Einarsdóttir hjá Arkís og Þráinn Hauksson hjá Landslagi fóru yfir valkosti að mótun tillögunnar í kjölfar forkynningar.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjörum.
04
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Garðaholts og Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
05
Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
06
Hraunhólar 6A - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar Hraunhólar 6A að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
07
Umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús. Sótt er um að fá leyfi til að koma fyrir færanlegu saunuhýsi við efra bílastæðið við Vífilsstaðavatn. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands Vífilsstaðavatns.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi fyrir saunahýsi til 6 mánuða til reynslu enda er starfsemin innan svæðis sem er fyrirhugað til almennrar útivistar samkvæmt deiliskipulagi.
08
Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til athafnalóðanna Suðurhrauns 8 og 10.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
11
Deiliskipulag Hraun vegna Stapahrauns 8-10 og Flathrauns 27
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.