Beint í efni

Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026

Málsnúmer 2511456

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (977). fundur

Almar Guðmundsson tók til máls.

Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Húsnæðisáætlun Garðabæjar ber merki þess að séreignastefna er áfram í forgangi hjá meirihlutanum. Áætlunin ber þó einnig merki um metnað í málaflokki fatlaðs fólks, sem er vel, en Garðabæjarlistinn vill sjá frekari áherslu á uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis, búseturéttaríbúða og leiguhúsnæðis í samstarfi við óhagnaðardrifin félög. Við eigum öll að geta búið í Garðabæ."

Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Uppfærð húsnæðisáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026 endurspeglar áframhaldandi metnaðarfulla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis sem miðar að því að mæta vaxandi þörf á húsnæðismarkaði og styðja við heilbrigt og fjölbreytt samfélag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja ríka áherslu á að uppbygging húsnæðis fari hönd í hönd við uppbyggingu innviða, þannig að tryggð sé áfram góð og aðgengileg þjónusta við íbúa, líkt og niðurstöður þjónustukannana hafa ítrekað staðfest.
Í áætluninni er lögð sérstök áhersla á fjölbreytni í íbúðagerð. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna þeirri skýru áherslu sem lögð er á aukna uppbyggingu sérbýlis og telja hana lykilatriði í áframhaldandi þróun bæjarins. Fyrirhuguð uppbygging sérbýlis í Hnoðraholti suður, á Álftanesi og í Háholti Hnoðraholts er mikilvægt og tímabært skref sem mætir eftirspurn fjölskyldna og styrkir stöðu Garðabæjar sem eftirsóknarverðs búsetukosts.
Jafnframt er mikilvægt að tryggja að ólíkir hópar hafi raunhæfan aðgang að húsnæði við hæfi, hvort sem um er að ræða fyrstu kaup, stækkun eða tilfærslu í minna húsnæði. Þar vegur séreignarstefna þungt sem grundvöllur að öryggi og stöðugleika heimila.
Áætlunin tekur einnig mið af þörf fyrir hagkvæmar íbúðir fyrir ólíka hópa. Áfram er gert ráð fyrir góðu samstarfi við Brynju leigufélag um kaup þeirra á leiguíbúðum í bænum og verið er að hefja uppbyggingu við nýjan búsetukjarna í Hnoðraholti sem mun bæta aðgengi að húsnæði fyrir fatlað fólk.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins líta á áætlunina sem mikilvægan lið í því að tryggja áframhaldandi uppbyggingu, jafnvægi og lífsgæði í Garðabæ."

Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ vill vekja athygli á því að uppsetning og útfylling húsnæðisáætlunar samkvæmt sniðmáti HMS geti, að hluta til, haft í för með sér að formkröfur vegi þyngra en raunveruleg áætlanagerð. Í skýrslunni má víða sjá óbreytt gildi milli ára sem gefa takmarkaða mynd af mögulegri framtíðarþróun. Þá teljum við mikilvægt að skýrt samræmi sé milli talna um félagslegt og hagkvæmt húsnæði og þess rökstuðnings sem fram kemur í texta áætlunarinnar. Við leggjum áherslu á að í samstarfi við HMS verði skoðað hvernig megi þróa bæði form og vinnulag þannig að húsnæðisáætlanir nýtist sem raunverulegt og gagnlegt stjórntæki. Jafnframt er bent á tækifæri til að byggja áfram á fyrirliggjandi greiningum um leik- og grunnskólaþörf og vinna markvisst með þau gögn til framtíðar."

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, GS, BDG) uppfærslu húsnæðisáætlunar Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lög um húsnæðismál nr. 44/1998. 3 bæjarfulltrúar (ÞÞ, HÞ, RSS) sátu hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (2207). fundur

Lögð fram húsnæðisáætlun Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lögum um húsnæðismál nr. 44/1998. Bæjarráð vísar húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Húsnæðisáætlun Garðabæjar lögð fram.

Bæjarráð Garðabæjar

04

11. (2206). fundur

Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfissviði og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði mættu á fund bæjarráðs og kynntu stöðu við vinnu húsnæðisáætlunar Garðabæjar.

Velferðarráð Garðabæjar

05

3. fundur

Drög að stafrænni húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026 lögð fram til umræðu.

Drög að stafrænni húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026 lögð fram til kynningar og umræðu.