11. (2206). fundur
11. (2206). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
24.03.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026.
Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfissviði og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði mættu á fund bæjarráðs og kynntu stöðu við vinnu húsnæðisáætlunar Garðabæjar.
02
Hegranes 35 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Hauki Stefánssyni, kt. 161072-4949, leyfi fyrir viðbyggingu einbýlishúss að Hegranesi 35.
03
Víkurgata 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Víkurgötu 2, húsfélagi, kt. 660419-1010, leyfi til að loka bílakjallara með fellihurð og gönguhurð ásamt að loka ljósopi í þaki bílakjallara, að Víkurgötu 2.
04
Markarflöt 30 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ómari Benediktssyni kt. 221059-4689, leyfi fyrir viðbyggingu við vesturhluta einbýlishúss, ásamt innri breytingum, að Markarflöt 30.
05
Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Trausta Ólafssyni, kt. 090574-5669, leyfi til að taka í notkun lokað rými í einbýlishúsi að Dalprýði 13.
06
Vetrarbraut 30 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi til að innrétta austurhluta 2. hæðar fyrir sjúkraþjálfun, að Vetrarbraut 30.
07
Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um stjórnsýslukæru vegna ákvörðunar bæjarstjórnar um deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts, dags. 12.03.26.
Lögð fram kæra Geirs Jóns Grettissonar og Berthu Kristínar Jónsdóttur, Þorrasölum 9, Kópavogi til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Garðabæjar um deiliskipulaga við Vetrarmýri og Smalaholti sem birt var með auglýsingu í B-hluta Stjórnartíðinda með nr. 154/2026. Kæran beinist sérstaklega að ákvörðun um lagningu Vorbrautar við Þorrasali og tengingar hennar við gatnakerfi Kópavogs.
Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
08
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Garðabæjar um veitingaleyfi í Lambamýri.
Lögð fram umsókn Garðabæjar um Veitingaleyfi í Flokki II - G Samkomusalir í fl. I að Lambamýri 1.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
09
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um tekjutengda afslætti til barnafjölskyldna.
Lögð fram fyrirspurn Garðabæjarlistans um tekjutengda afslætti til barnafjölskyldna, ásamt samantekt svara við fyrirspurninni.