Opnun tilboða í verkið - Búsetukjarni við Haustbraut.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (2230). fundur
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Haustbraut 2 - búsetukjarni":
1. Húsameistari ehf., kr. 597.710.210 (109,24%).
2. AI-verk ehf., kr. 483.878.823 (88,43%)
3. Verkeining ehf., kr. 548.966.320 (100,33%).
4. Rætur verktakar ehf., kr. 628.191.120 (114,81%).
5. VHE ehf., kr. 438.134.913 (80,07%).
6. Aðalvík ehf., kr. 495.794.301 (90,61%).
7. Tindhagur ehf., kr. 579.358.588 (105,88%).
8. Landris Byggingar ehf., kr. 449.933.747 (82,23%).
9. Atals verktakar ehf., kr. 534.374.000 (97,66%).
10. All Verk ehf., kr. 488.708.727 (89,32%).
11. K16 ehf., kr. 587.274.487 (107,33%).
12. Probygg ehf., kr. 488.407.564 (89,26%).
13. E. Sigurðsson ehf., kr. 494.461.129 (90,37%).
14. Sérverk ehf., kr. 509.72.672 (93,16%).
15. Borg byggingalausnir ehf., kr. 540.372.461 (98,76%).
16. Afltak ehf., kr. 583.160.065 (106,58%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 547.170.185. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda VHE ehf., að fjárhæð kr. 438.134.913, sem er 80,07% af kostnaðaráætlun.
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (2215). fundur
Lögð fram útboðs og verklýsing vegna útboðs á búsetukjarna við Haustbraut 2.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
4. fundur
Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi jarð- og lagnavinnu á búsetukjarnalóð á háholti Hnoðraholts. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Bæjarráð Garðabæjar
05
12. (2207). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Jarðvinna fyrir 7 íbúða búsetukjarna ásamt starfsmannaaðstöðu við Haustbraut 2."
1. Karína ehf., kr. 16.777.100 (57%).
2. Svartaskarð ehf., kr. 20.153.900 (69%).
3. Gott verk ehf., kr. 20.671.900 (71%).
4. Dráttarvélar Vélaleiga ehf., kr. 22.507.920 (77%).
5. D-Ing-verk ehf., kr. 23.279.700 (79%).
6. F.T. ehf., kr. 25.024.900 (85%).
7. Grafa og grjót ehf., kr. 26.590.492 (91%).
8. Fagurverk ehf., kr. 26.961.000 (92%).
9. Urð og Grjót ehf., kr. 27.263.300 (93%).
10. Línuborun ehf., kr. 27.953.414 (95%).
11. Gleipnir verktakar ehf., kr. 32.000.000 (109%).
12. Emkan ehf., kr. 33.300.000 (114%).
13. Stjörnugarðar ehf,. kr. 43.136.150 (147%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 29.296.500. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Karínu ehf. ehf., að fjárhæð kr. 16.777.100, (57% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
06
10. (2205). fundur
Lögð fram útboðslýsing vegna jarðvinnu fyrir 7 íbúða búsetukjarna ásamt starfsmannaaðstöðu við Haustbraut 2.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.