4. fundur
4. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.04.2026
Kl. 11:00 - 12:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2603328
01
Hátún 1 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn vegna skólskála og skjólveggja við Hátún 1. Hvað skjólveggi varðar þá er Garðabær í þessu tilfelli ekki aðliggjandi lóðarhafi, nema á þeim hluta lóðarinnar sem snýr að húsagötunni Hátúni en leita skal samþykkis aðliggjandi lóðarhafa vegna frágangs á lóðarmörkum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við girðingu á lóðarmörkum sem er allt að 1,2 m á hæð og snýr að húsagötu.
Hvað sólskála varðar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis vegna sólskála sem staðsettur er innan byggingarreits. Nái sólkáli útfyrir byggingarreit skal hámarksbreidd og lengd sólstofu vera 4 m, sjá ákvæði í deiliskipulagi Túnahverfis sem tekur á sólstofum.
Málsnúmer 2602468
02
Vesturtún 17 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Vesturtún 17. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2305322
03
Kumlamýri 24 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram fyrirspurn um frágang á lóð og lóðarmörkum. Máli vísað til frekari skoðunar.
Málsnúmer 2305315
04
Kumlamýri 22 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram fyrirspurn um frágang á lóð og lóðarmörkum. Máli vísað til frekari skoðunar.
Málsnúmer 2604185
05
sjóvarnir við Golfklúbb Álftaness
Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi vegna sjóvarna við Golfklúbb Álftaness. Um lausnir til bráðabirgða er að ræða. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir bráðabirgða sjóvörnum við Golfklúbb Álftaness sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2604002
06
Breiðás 11 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um fjölgun bílastæða að lóðinni Breiðás 11 úr þremur í fjögur. Skipulagsstjóri vísar tillögu að deiliskipulagsbreytingu þess efnis til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Breiðás 9 og 10.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2601206
07
Hraunhólar 6A - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppfærðir uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Hraunhóla 6a sem viðbrögð við athugasemdum sem bárust við grenndarkynningu. Hús hefur verið lækkar sem nemur einni hæð og bílageymsla er alfarið innan byggingarreits. Bygging er því í fullu samræmi við deiliskipulag Hraunsholts eystra.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Um ákörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II bið samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2603407
08
Espilundur 5 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsóknum byggingarleyfi við Espilund 5. Umsóknin felur í sér viðbyggingu, þar sem áður var samþykktur sólskáli.
Þar sem viðbygging stendur utan gildandi byggingarreits kallar umsóknin á óverulega breytingu á deiliskipulagi Lunda.
Málsnúmer 2603057
09
Útholt 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2603058
10
Útholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2603213
11
Búsetukjarni við Haustbraut - Lagnir og jarðvinna - Framkvæmdarleyfi
Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi jarð- og lagnavinnu á búsetukjarnalóð á háholti Hnoðraholts. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2306493
12
Lautargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram umsókn um breytingu á áður samþykktum aðaluppdráttum fyrir Lautargötu 1. Breytingin felur í sér til að mynda tilfærslu á aðalinngangi af 2. hæð, niður á 1. hæð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2107272
13
Maríugata 5 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna svalaskjóls á svalagang 5. hæðar fjölbýlishúss við Maríugötu 5.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.