Hátún 1 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Málsnúmer 2603328
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
4. fundur
Lögð fram fyrirspurn vegna skólskála og skjólveggja við Hátún 1. Hvað skjólveggi varðar þá er Garðabær í þessu tilfelli ekki aðliggjandi lóðarhafi, nema á þeim hluta lóðarinnar sem snýr að húsagötunni Hátúni en leita skal samþykkis aðliggjandi lóðarhafa vegna frágangs á lóðarmörkum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við girðingu á lóðarmörkum sem er allt að 1,2 m á hæð og snýr að húsagötu.
Hvað sólskála varðar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis vegna sólskála sem staðsettur er innan byggingarreits. Nái sólkáli útfyrir byggingarreit skal hámarksbreidd og lengd sólstofu vera 4 m, sjá ákvæði í deiliskipulagi Túnahverfis sem tekur á sólstofum.