Opnun tilboða í verkið - Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
25. (2220). fundur
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi":
1. Fagurverk, kr. 545.526.000 (83,9%).
2. Dráttarbílar Vélaleiga ehf., kr. 534.673.870 (82,2%).
3. Jarðval sf., kr. 453.428.500 (69,7%).
4. PK Verk ehf., kr. 527.434.516 (81,1%).
5. Loftorka Reykjavík ehf., kr. 495.000.000 (76,1%).
6. Stjörnugarðar ehf., kr. 559.900.450 (86,1%).
7. Háfell ehf., kr. 515.222.300 (79,2%).
8. Óskatak ehf., kr. 522.733.200 (80,4%).
9. D.Ing - verk ehf., kr. 527.554.450 (81,1%).
10. Karína ehf., kr. 478.895.960 (73,6%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 650.000.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Jarðvals sf., að fjárhæð kr. 453.428.500 (69,7% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
02
23. (2218). fundur
Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna Hönnun - Útboð - Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.