Beint í efni

41. (2142). fundur

05.11.2024
Bæjarráð Garðabæjar

41. (2142). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

05.11.2024

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2407142

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028)

Bæjarstjóri fór almennt yfir meginatriði varðandi vinnu við gerð frumvarps að fjárhagsáætlun 2025 og fór yfir forsendur, framkvæmdayfirlit og gjaldskrár.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2026-2028) til fyrri umræðu í bæjarstjórn samkvæmt 3.mgr. 62.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2.mgr. 40.gr. Samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Fyrri umræða fer fram í bæjarstjórn fimmtudaginn 7. nóvember 2024.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið.

Málsnúmer 2410186

02

Skuldabréfaútboð Garðabæjar - lántaka

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku.

Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk í 4. nóvember 2024. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 3.600 m.kr. að nafnverði.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 2.500 m.kr. að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,7%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 3.537.386.425 kr.

Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði 500 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 3.000 m.kr. að nafnverði.

Lántaka á B-hluta, Samveitur Garðabæjar verði 3.000 m.kr. af heildarfjárhæðinni í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að í tengslum við útboðið verði heimild til langtímalántöku í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024 hækkuð um 540 mkr. úr 4.500 m.kr. í 5.040 m.kr.

Viðbótarfjárhæðinni verði varið í uppgreiðslu skammtímalána fyrir sömu fjárhæð.

Málsnúmer 2409145

03

Stekkholt 12 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gleipni verktökum ehf., kt. 691208-0950, leyfi til að byggja tvílyft einbýlishús með innbyggðum bílskúr, að Stekkholti 12.

Málsnúmer 2409278

04

Vinastræti 28 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þróunarsjóði Oddfellowreglunnar, kt. 441208-1460, leyfi fyrir byggingu samkomuhúss, að Vinastræti 28.

Málsnúmer 2409021

05

Þorraholt 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu 7 íbúða fjölbýlishúss á þremur hæðum að Þorraholti 15.

Málsnúmer 2409020

06

Þorraholt 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu 7 íbúða fjölbýlishúss að Þorraholti 17.

Málsnúmer 2410482

07

Verkfallsboðun kennara í Garðaskóla.

Lagt fram bréf Félags grunnskólakennara dags. 23. október 2024. Í bréfinu kemur fram að Kennarasamband Íslands og Félag grunnskólakennara boði til vinnustöðvunar (verkfalls) félagsmanna Félags grunnskólakennara sem janframt eru félagsmenn Kennarasambands Íslands og starfa í Garðaskóla í Garðabæ.

Lagt fram sambærilegt bréf barst frá Skólastjórafélagi Íslands dags. 23. október 2024, þar sem fram kemur að Kennarasamband Íslands og Skólastjórafélag Íslands boði til vinnustöðvunar (verkfalls) félagsmanna Skólastjórafélags Íslands sem jafnframt eru félagsmenn í Kennarasambandi Íslands og starfa í Garðaskóla.

Vinnustöðvun er tímabundin og hefst 25. nóvember kl. 00:01 og lýkur 20. desember kl. 23:59. Vinnustöðvunin tekur aðeins til Garðaskóla

Bæjarráð vísar erindunum til bæjarstjóra.

Málsnúmer 2403266

08

Sorphirðusamþykkt Garðabæjar

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Garðabæ, skv. ákvæðum 2.mgr. 8.gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, sbr. 2.mgr. 59.gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Frá sama tíma falli úr gildi samþykkt Garðabæjar nr. 438, um meðhöndlun úrgangs í Garðabæ.

Málsnúmer 2407394

09

Reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn.

Ekki bárust athugasemdir við drög að reglum um stuðningsfjölskyldur.

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2410466

10

Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi ágóðahlutagreiðslu 2024, dags. 25. október 2024.

Lagt fram bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands þar sem fram kemur að ágóðahluti Garðabæjar fyrir árið 2024 er að fjárhæð kr. 1.810.000.

Málsnúmer 2410505

11

Bréf Stígamóta varðandi framlag til starfseminnar fyrir árið 2025, dags. 30. október 2024.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2025.

Málsnúmer 2410509

12

Bréf Skjólsins um styrk, dags. 29. október 2024.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2025.

Málsnúmer 2410516

13

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi fjárhagsáætlun skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, dags. 30. október 2024.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.

Málsnúmer 2410518

14

Bréf Lionsklúbbs Álftaness varðandi húsnæði fyrir skötuveislu á Þorláksmessu, dags. 30. október 2024.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 2410521

15

Bréf Lionsklúbbs Álftaness varðandi afnot af húsnæði fyrir þorrablót, dags. 30. október 2024

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.