Verkfallsboðun kennara í Garðaskóla.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
41. (2142). fundur
Lagt fram bréf Félags grunnskólakennara dags. 23. október 2024. Í bréfinu kemur fram að Kennarasamband Íslands og Félag grunnskólakennara boði til vinnustöðvunar (verkfalls) félagsmanna Félags grunnskólakennara sem janframt eru félagsmenn Kennarasambands Íslands og starfa í Garðaskóla í Garðabæ.
Lagt fram sambærilegt bréf barst frá Skólastjórafélagi Íslands dags. 23. október 2024, þar sem fram kemur að Kennarasamband Íslands og Skólastjórafélag Íslands boði til vinnustöðvunar (verkfalls) félagsmanna Skólastjórafélags Íslands sem jafnframt eru félagsmenn í Kennarasambandi Íslands og starfa í Garðaskóla.
Vinnustöðvun er tímabundin og hefst 25. nóvember kl. 00:01 og lýkur 20. desember kl. 23:59. Vinnustöðvunin tekur aðeins til Garðaskóla
Bæjarráð vísar erindunum til bæjarstjóra.