Þorraholt 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
41. (2142). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir byggingu 7 íbúða fjölbýlishúss að Þorraholti 17.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
13. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir af fjölbýlishúsi að Þorraholti 17 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram ásamt greinargerð hönnuðar hússins þar sem brugðist er við umsögninni.
Samkvæmt skipulagi skulu svalir fara að hámarki 0,6 m út fyrir byggingarreit. Samkvæmt afstöðumynd á aðaluppdrætti ná svalir á vesturgafli og suðurgafli byggingar lengra allt að 0,8 m út fyrir byggingarreit. Breidd byggingar á 4 m kafla er 16,6 m en samkvæmt skipulagi skal hámarksbreidd byggingar vera 15 m.
Skipulagsstjóri lítur svo á að ákvæði um bílastæðafjölda sé lágmarksákvæði.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað svalir og breidd byggingar varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.