Beint í efni

Endurnýjun samstarfssamnings við Umf. Stjörnuna

Málsnúmer 2603220

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (976). fundur

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Bæjarfulltrúar í Garðabæjarlistanum og Viðreisn í Garðabæ vilja lýsa ánægju með að í nýjum samstarfssamningi við Stjörnuna sé sérstaklega kveðið á um að greina, móta og innleiða fjölgreinaafslátt. Við höfum í undanfarin ár lagt fram tillögur er varða innleiðingu á systkinaafslætti og fjölgreinaafslætti. Við höfum talað skýrt fyrir mikilvægi þess að börn og ungmenni hafi raunhæfar leiðir til að stunda fleiri en eina íþrótt án þess að kostnaður verði hindrun. Það er því fagnaðarefni að meirihlutinn hafi nú tekið undir þessa sýn og við teljum þetta mikilvægt skref í átt að fjölbreyttara og aðgengilegra íþróttastarfi fyrir öll börn."

Björg Fenger tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun samstarfssamnings og samnings um rekstur knattspyrnuvalla við UMF Stjörnuna með gildistíma til 31. desember 2028.

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (2205). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna og samning um rekstur knattspyrnuvalla í Garðabæ, báða með gildistíma til 31. desember 2028.