Hjallastefnan, uppbygging á Vífilsstöðum
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
39. fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar grunnskóla og Linda Udengaard sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynntu ný undirritaðan samning við Hjallastefnuna. Samningurinn felur í sér frekari uppbyggingu Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Skólanefnd fagnar faglegu og fjölbreyttu námsumhverfi barna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
6. (976). fundur
Almar Guðmundsson tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.
Samningur um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum er samþykktur samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
03
9. (2204). fundur
Bæjarstjóri og sviðsstjóri Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri fræðslu- og frístundarsviðs gerðu grein fyrir samkomulagi um við Hjallastefnuna um sameiginlegar áherslur, uppbyggingu og rekstur skólastarfsemi Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Markmið samkomulagsins er að kveða á um uppbyggingu, húsnæðis- og lóðamál milli aðila vegna skólastarfsemi Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samning og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
4. (2199). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Hjallastefnuna ehf. um uppbyggingu og útfærslu skólastarfs á Vífilsstöðum.