6. fundur
6. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.05.2026
Kl. 13:00 - 14:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2604344
01
Fjarskiptamastur - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
Íslandsturnar Sendingastaðir hf. sækja um leyfi til að reisa 16 metra fjarskiptamastur á lóðinni Fjarskiptamastur. Suðurnesv. - Höfðabraut, í samræmi við framlögð gögn. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis.
Málsnúmer 2604570
02
Hátún 5B - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja fyrirspurn um frágang á lóð við Hátún 5B. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Málsnúmer 2305315
03
Kumlamýri 22 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram uppfærðir lóðaruppdrættir fyrir Kumlamýri 22. Skipulagsstjóri gerir ekki athugsasemd við framlagða útfærslu á lóð.
Málsnúmer 2604373
04
Vesturtún 53b - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um byggingu smáhýsis við Vesturtún 53b, ásamt samþykki aðliggjandi lóðarhafa. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd þegar smáhýsi sem nú þegar er á lóðinni hefur verið fjarlægt og ef hæð og stærð fari ekki yfir viðmið byggingarreglugerðar um smáhýsi.
Málsnúmer 2506035
05
Vesturhraun 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að undangenginni deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.
Málsnúmer 2602301
06
Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu ásamt innsendri athugasemd.
Gerð er athugasemd við staðsetningu nýs svefnherbergisglugga vegna möguleika á innsýn að aðliggjandi lóð og lagt er til að færa gluggan að austurhlið.
Þar sem að fleiri svefnherbergisgluggar snúa nú þegar að aðliggjandi lóð telur skipulagsstjóri staðsetningu viðbótar glugga ekki íþyngjandi. Ef samkomulag næst milli eigenda húsanna um staðsetningu á austurhlið gerir skipulagsstjóri ekki heldur athugasemd við þá staðsetningu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við það að byggingarleyfi verði veitt í samræmi við grenndarkynnt gögn eða aðra útfærslu í samkomulagi milli eigenda.
Málsnúmer 2604300
07
Steinprýði 10 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Steinprýði 10. Tillagan felur í sér að skipta lóðinni upp í tvær lóðir fyrir tvíbýli.
Skipulagsstjóri getur ekki fallist á umsóknina, þar sem skipulagsnefnd Garðabæjar hefur hafnað sambærilegri umsókn innan sama skipulagssvæðis.
Málsnúmer 2604250
08
Þernunes 6 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Þernunes 6.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2605045
09
Blikanes 27 - Veggur
Lögð fram fyrispurn um útfærslu stoðveggja við Blikanes 27. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærsluna en minnir á að allur frágangur á lóðarmörkum skal gerður í samráði við aðliggjandi lóðarhafa.
Málsnúmer 2604288
10
Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Lágmarksstærð svala
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.6 sem nær til lágmarksstærðar svala og segir að lágmarksstærð svala skuli vera í öllum íbúðum að lágmarki 6 m². Sótt er um að ákvæði um lágmarksstærð svala breytist á þann hátt að lágmarksstærð svala fyrir íbúðir stærri en 80 m2 skuli vera að lágmarki 6 m² en fyrir íbúðir minni en 80 m² skulu svalir vera að lágmarki 4 m².
Skipulagsstjóri fellst á breytingartillöguna og metur hana sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2604289
11
Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Inndregnar svalir
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.6 sem nær til inndreginna svala. Sótt er um að ákvæði um inndregnar svalir breytist á þann hátt að 70 % svala í byggingum skulu ganga a.m.k. 1 m inn í byggingarnar.
Skipulagsstjóri fellst á breytingartillöguna og metur hana sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2604292
12
Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Lágmarks salarhæð
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.5 sem nær til salarhæðar fjölbýlishúsa og segir að lágmarkssalarhæð skuli vera 3 m. Sótt er um að ákvæði um salarhæð fjölbýlishúsa breytist á þann hátt að lágmarks salarhæð fjölbýlishúsa skuli vera 2,9 m.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2604291
13
Arnarland_Umsókn um dsk.br. - 30 cm jarðlag í inngörðum
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarland sem nær til greinar 5.2.7 sem tekur á lágmarksþykkt jarðlaga í inngörðum á yfirborði þakplötu bílakjallara og segir að það skuli vera að lágmarki 30 cm. Sótt er um að ákvæði um lágmarksþykkt jarðlaga í inngörðum á yfirborði þakplötu bílakjallara breytist á þann hátt að 25% yfirborðs í inngörðum skal hafa jarðvegsþykkt að lágmarki 30 cm, til að styðja við vöx gróðurs.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2604293
14
Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Svalir í inngarði
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarland sem nær til greinar 5.2.5.6 sem tekur á svölum/frönskum svölum að inngörðum. Sótt er um að ákvæði um svalir/franskar svalir veðri fellt út. Skipulagsstjóri fellst á að ákvæði um svalir að inngörðum sé valkvætt en a.m.k. skuli vera franskar svalir sem snúa að inngörðum.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Málsnúmer 2604294
15
Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Hjólastæði
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.3.3 sem nær til hjólastæða. Umsókn kveður á um að ákvæði um hjólastæði breytist á þann hátt:
- Heimilt er að koma fyrir hjólastæðum í séreignageymslur íbúða fjölbýlishúsa.
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 250 m² af skrifstofuhúsnæði
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 100 m² af verslun og þjónustu
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 200 m² af heilbrigðisstafsemi
- 5 hjólastæði skal vera fyrir hverja 100 nemendur í leikskóla og 0,2 hjólastæði fyrir hvern starfsmann.
Skipulagsstjóri leggur til að rými í kjallara heilsuklasa verði skilgreint sem geymslurými en verði nýtt sem bíla- og/eða hjólastæði ef að þörf krefur.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2604295
16
Arnarland_Umsókn um dsk.br. gróður á inndregnum þakflötum
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.8 sem nær til gróðurs á húsþökum. Sótt er um að ákvæði um gróður á húsþökum breytist á þann hátt að heimilt verður að falla frá ákvæðunum á þökum inndregna byggingarhluta og í stað þess að skal setja hellur.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2604063
17
Aratún 20 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Aratún 20 ásamt samþykki lóðarhafa í sömu raðhúsalengju.
Viðbygging fer líttilega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað
ofangreint atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2603416
18
Tjarnarflöt 9 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna Tjarnaflatar 9. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2603421
19
Vorbraut 4 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Vorbraut 4 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en flatarmál kjallara er 56 m²
meira en heimilað er en flatarmál ofanjarðar er 51,7 m² undir heimild. Kjallari fer 2 metra út fyrir byggingareit á baklóð. Einnig er GK kjallara og 1. hæðar um 20 cm hærri en hæðarblað segir til um en fer þó bygging ekki upp fyrir leyfilega hámarkshæð skv. deiliskipulagi. Skipulagsstjóri leggur áherslu á að við lóðarfrágang verði hugað vel að gróðursetningu trágróðurs að norðanverðu vegna ásýndar útveggjar bílageymslu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2603420
20
Vorbraut 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Vorbraut 6 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en flatarmál kjallara er 47 m² meira en heimilað er en flatarmál ofanjarðar er 51,7 m² undir heimild. Kjallari fer 2 metra út fyrir byggingareit á baklóð. Einnig er GK kjallara og 1. hæðar um 1,5 m hærri en hæðarblað segir til um en fer þó bygging ekki upp fyrir leyfilega hámarkshæð skv. deiliskipulagi. Skipulagsstjóri leggur áherslu á að við lóðarfrágang verði hugað vel að gróðursetningu trágróðurs að norðanverðu vegna ásýndar útveggjar bílageymslu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað
ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2603466
21
Urriðaholtsstræti 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir Urriðaholtsstrætis 3 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru að mestu í samræmi við ákvæði deiliskipulags en heimilað byggingamagn samkvæmt deiliskipulagsskilmálum er 2.500 m² í atvinnuhúsnæði og
2.000 m² í bílgeysmslu. Samkvæmt byggingarlýsingu er byggingarmagn atvinnuhúsnæðis 2.445,7 m² en byggingarmagn bílgeymslu, sem er neðanjarðar og innan byggingarreits, er 2.809,4 m² eða 809,4 m² umfram byggingarheimildir.
Umsókn kallar á breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluti 4. áfangi.
Skipulagsstjóri metur breytingartillögu sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðahots, norðurhluti 4. áfangi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.