Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Lágmarks salarhæð
Málsnúmer 2604292
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
7. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.5 sem nær til salarhæðar fjölbýlishúsa og segir að lágmarkssalarhæð skuli vera 3 m. Sótt er um að ákvæði um salarhæð fjölbýlishúsa breytist á þann hátt að lágmarks salarhæð fjölbýlishúsa skuli vera 2,9 m.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.