Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Lágmarksstærð svala
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
7. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.6 sem nær til lágmarksstærðar svala og segir að lágmarksstærð svala skuli vera í öllum íbúðum að lágmarki 6 m². Sótt er um að ákvæði um lágmarksstærð svala breytist á þann hátt að lágmarksstærð svala fyrir íbúðir stærri en 80 m2 skuli vera að lágmarki 6 m² en fyrir íbúðir minni en 80 m² skulu svalir vera að lágmarki 4 m².
Skipulagsstjóri fellst á breytingartillöguna og metur hana sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.