Arnarland_Umsókn um dsk.br. - 30 cm jarðlag í inngörðum
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
7. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarland sem nær til greinar 5.2.7 sem tekur á lágmarksþykkt jarðlaga í inngörðum á yfirborði þakplötu bílakjallara og segir að það skuli vera að lágmarki 30 cm. Sótt er um að ákvæði um lágmarksþykkt jarðlaga í inngörðum á yfirborði þakplötu bílakjallara breytist á þann hátt að 25% yfirborðs í inngörðum skal hafa jarðvegsþykkt að lágmarki 30 cm, til að styðja við vöx gróðurs.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.