Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Hjólastæði
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
7. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.3.3 sem nær til hjólastæða. Umsókn kveður á um að ákvæði um hjólastæði breytist á þann hátt:
- Heimilt er að koma fyrir hjólastæðum í séreignageymslur íbúða fjölbýlishúsa.
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 250 m² af skrifstofuhúsnæði
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 100 m² af verslun og þjónustu
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 200 m² af heilbrigðisstafsemi
- 5 hjólastæði skal vera fyrir hverja 100 nemendur í leikskóla og 0,2 hjólastæði fyrir hvern starfsmann.
Skipulagsstjóri leggur til að rými í kjallara heilsuklasa verði skilgreint sem geymslurými en verði nýtt sem bíla- og/eða hjólastæði ef að þörf krefur.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.