Urriðaholtsstræti 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
7. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir Urriðaholtsstrætis 3 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru að mestu í samræmi við ákvæði deiliskipulags en heimilað byggingamagn samkvæmt deiliskipulagsskilmálum er 2.500 m² í atvinnuhúsnæði og
2.000 m² í bílgeysmslu. Samkvæmt byggingarlýsingu er byggingarmagn atvinnuhúsnæðis 2.445,7 m² en byggingarmagn bílgeymslu, sem er neðanjarðar og innan byggingarreits, er 2.809,4 m² eða 809,4 m² umfram byggingarheimildir.
Umsókn kallar á breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluti 4. áfangi.
Skipulagsstjóri metur breytingartillögu sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðahots, norðurhluti 4. áfangi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.