Vorbraut 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
7. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Vorbraut 6 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en flatarmál kjallara er 47 m² meira en heimilað er en flatarmál ofanjarðar er 51,7 m² undir heimild. Kjallari fer 2 metra út fyrir byggingareit á baklóð. Einnig er GK kjallara og 1. hæðar um 1,5 m hærri en hæðarblað segir til um en fer þó bygging ekki upp fyrir leyfilega hámarkshæð skv. deiliskipulagi. Skipulagsstjóri leggur áherslu á að við lóðarfrágang verði hugað vel að gróðursetningu trágróðurs að norðanverðu vegna ásýndar útveggjar bílageymslu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað
ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.