Beint í efni

32. (2227). fundur

22.09.2026
Bæjarráð Garðabæjar

32. (2227). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

22.09.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2510290

01

Þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning.

Kynning HLH ráðgjafar varðandi greiningu á rekstri og skipulagi þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Ragnheiður Agnarsdóttir og Arnar Haraldsson kynntu niðurstöður greiningarinnar.

Bæjarráð vísar kynningunni til umfjöllunar í velferðarráði og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.

Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2609385

02

Árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2026.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, gerði grein fyrir árshlutauppgjöri Garðabæjar fyrir tímabilið janúar - júní 2026.

Niðurstaða A og B hluta fyrir tímabilið er í þ.kr.: Rekstrartekjur 17.864.216. Rekstrargjöld 15.612.253. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 2.251.953.

Afskriftir (1.055.072). Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og gjalda 1.196.881. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (1.474.054). Rekstrarniðurstaða er neikvæð 277.174.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2603420

03

Vorbraut 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf., kt. 681290-2309 leyfi fyrir byggingu 4. hæða fjölbýlishúss með 14 íbúðum og bílakjallara að Vorbraut 6.

Málsnúmer 2609373

04

Tilkynning um stjórnsýslukæru UUA2609012 - Hlaðan á Spildu A úr landi Grundar



Lögð fram kæra íbúa Breiðabólsstaða til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Garðabæjar um að vieta byggingarleyfi á grundvelli grenndarkynningar vegna Hlöðunnar á Spildu A úr landi Grundar við Breiðabólsstaðatjörn á Álftanesi.

Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Málsnúmer 2607210

05

Útboð - Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2026-2029

Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2026-2029":

1. Knudsen Verktakar ehf., kr. 249.150.000 (130,6%).

2. Dráttarbílar Vélaleiga ehf., kr. 137.799.000 (72,2%).

3. Bjartey ehf., kr. 250.740.000 (131,4%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 190.800.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Dráttarbíla Vélaleigu ehf., að fjárhæð kr. 147.799.000, sem er 72,2% af kostnaðaráætlun.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2609344

06

Útboð - Breiðamýri Stígagerð

Lögð fram verklýsing vegna Álftaness, miðsvæði. Svæði 1 - Breiðamýri. Stígar - yfirborðsfrágangur.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 2603065

07

Hönnun - Útboð - Hreinsun Gatna 2026-2028

Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Hreinsun gatna í Garðabæ 2027-2029":

1. Garðlist ehf., kr. 59.180.350 (101,9%).

2. Hreinsitækni ehf., kr. 55.263.204 (95,1%),

3. Jarðgrip ehf., kr. 60.365.000 (103,9%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 58.100.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Hreinsitækni ehf., að fjárhæð kr. 55.263.204, sem er 95,1% af kostnaðaráætlun.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2607211

08

Útboð - Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið: "Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029":

1. Dráttarbílar Vélaleiga ehf., kr. 61.174.585 (76,1%).

2. Knudsen Verktakar ehf., kr. 309.420.000 (384,9%).

3. Jarðgrip ehf., kr. 219.000.000 (272,4%).

4. Garðaþjónusta Reykjavíkur ehf., kr. 92.700.000 (115,3%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 80.400.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Dráttarbíla Vélaleigu ehf., að fjárhæð kr. 61.174.585, sem er 76,1% af kostnaðaráætlun.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2609314

09

Erindi VR til bæjarstjórna

Erindi VR, Landsambands íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins f.h. Fagfélaganna vegna aðgerða sveitarfélaga til að sporna við háum vöxtum og verðbólgu.

Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Málsnúmer 2609316

10

Fjárlagafrumvarp 2027 - Betri Samgöngur

Erindi innviðaráðuneytisins vegna framlaga til Betri samgangna ohf. lagt fram. Í erindinu kemur fram að framlög ríkisins til Betri samgangna ohf., vegna framkvæmda skv. samgöngusáttmálanum verði tímabundið lækkuð um 2 milljarða króna.

Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir á vettvangi SSH þar sem m.a. verði tekið til skoðunar hvort þessi ráðstöfun sé í samræmi við Samgöngusáttmála og viðbrögð sveitarfélaganna metin

Málsnúmer 2609406

11

Erindi Starfsgreinasambands Íslands um þjóðarsátt um verðstöðugleika, dags. 16.09.26.

Erindi Starfsgreinasambands Íslands um þjóðarsátt um verðstöðugleika lagt fram.

Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Málsnúmer 2609432

12

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Garðabæjar um veitingaleyfi í Lambamýri.

Lögð fram umsókn Garðabæjar um Veitingaleyfi í Flokki II - G Samkomusalir í fl. I að Lambamýri 1.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.