Úttekt á málaflokki fatlaðs fólks
Ferill máls
Velferðarráð Garðabæjar
01
8. fundur
Ragnheiður Agnarsdóttir og Arnar Haraldsson sátu fundinn undir þessum lið og kynntu skýrslu úttektar á málaflokki fatlaðs fólks í Garðabæ. Velferðarráð leggur áherslu á að niðurstöður úttektar verði vel rýndar af hálfu starfsfólks velferðarsviðs og að málið verði tekið aftur til umræðu á næsta fundi velferðarráðs.
Bæjarráð Garðabæjar
02
32. (2227). fundur
Kynning HLH ráðgjafar varðandi greiningu á rekstri og skipulagi þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Ragnheiður Agnarsdóttir og Arnar Haraldsson kynntu niðurstöður greiningarinnar.
Bæjarráð vísar kynningunni til umfjöllunar í velferðarráði og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
03
40. (2188). fundur
Lagt fram minnisblað velferðarsviðs vegna greiningar á rekstri málaflokks fatlaðs fólks hjá Garðabæ og tillögu að úrvinnslu verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir að fela HLH ráðgjöf greiningarverkefnið sem fjármagnað verði með framlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.