8. fundur
8. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
25.09.2026
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Anna Ragnheiður Möller - formaður
- Ýmir Örn Finnbogason - aðalmaður
- Haukur Þorsteinsson - aðalmaður
- Inga Amal Hasan - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- Joanna Marcinkowska - áheyrnarfulltrúi
- Vilborg Anna S. Garðarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
- Pála Marie Einarsdóttir - deildarstjóri
Ritari
- Snædís Björnsdóttir
Dagskrá
01
Úttekt á málaflokki fatlaðs fólks
Ragnheiður Agnarsdóttir og Arnar Haraldsson sátu fundinn undir þessum lið og kynntu skýrslu úttektar á málaflokki fatlaðs fólks í Garðabæ. Velferðarráð leggur áherslu á að niðurstöður úttektar verði vel rýndar af hálfu starfsfólks velferðarsviðs og að málið verði tekið aftur til umræðu á næsta fundi velferðarráðs.
02
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið og fór yfir stöðu búsetuúrræðis fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
03
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerðir samráðshóps SSH um velferðarmál 13. ágúst og 2. september sl. lagðar fram til kynningar.
04
Forgangsröðun samkvæmt reglum um stuðningsþjónustu
Framkvæmd forgangsröðunnar þjónustu skv. reglum Garðabæjar um stuðningsþjónustu lögð fram til kynningar.
05
Fyrirspurn um aðgengi og aðlögun málsmeðferðar
Erindi frá Mannréttindastofnun Íslands varðandi leiðbeiningar um aðlögun málsmeðferðar. Bæjarráð vísaði erindinu til umfjöllunar í velferðarráði á fundi sínum 9. júní sl. Mannréttindastofnun óskar svara fyrir lok septembermánaðar. Starfsfólk velferðarsviðs sendir Mannréttindastofnun umbeðnar upplýsingar fyrir lok mánaðar.