Beint í efni

Útboð - Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029.

Málsnúmer 2607211

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

34. (2229). fundur

Lögð fram minnisblöð COWI vegna útboðs í vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029.

Bæjarráð vísar málinu til umhverfissviðs til skoðunar á grundvelli a. liðar 1.mgr. 39.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Bæjarráð Garðabæjar

02

32. (2227). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið: "Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029":

1. Dráttarbílar Vélaleiga ehf., kr. 61.174.585 (76,1%).

2. Knudsen Verktakar ehf., kr. 309.420.000 (384,9%).

3. Jarðgrip ehf., kr. 219.000.000 (272,4%).

4. Garðaþjónusta Reykjavíkur ehf., kr. 92.700.000 (115,3%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 80.400.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Dráttarbíla Vélaleigu ehf., að fjárhæð kr. 61.174.585, sem er 76,1% af kostnaðaráætlun.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

03

25. (2220). fundur

Lögð fram verklýsing vegna vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.