Vorbraut 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
24. (2219). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf., kt. 681290-2309, leyfi fyrir byggingu 4. hæða fjölbýlishúss með 14 íbúðum og bílakjallara, að Vorbraut 4.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
7. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Vorbraut 4 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en flatarmál kjallara er 56 m²
meira en heimilað er en flatarmál ofanjarðar er 51,7 m² undir heimild. Kjallari fer 2 metra út fyrir byggingareit á baklóð. Einnig er GK kjallara og 1. hæðar um 20 cm hærri en hæðarblað segir til um en fer þó bygging ekki upp fyrir leyfilega hámarkshæð skv. deiliskipulagi. Skipulagsstjóri leggur áherslu á að við lóðarfrágang verði hugað vel að gróðursetningu trágróðurs að norðanverðu vegna ásýndar útveggjar bílageymslu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.