Beint í efni

22. fundur

08.04.2020
Umhverfisnefnd Garðabæjar

22. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

08.04.2020

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
  • Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
  • Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1804367

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.

Ráðgjafateymi Batterísins, Landslags og Eflu gerðu grein fyrir tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B auk Vífilsstaðahrauns. Tillagan er sett fram sem rammahluti Aðalskipulags. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla. Forkynning hefur farið fram. Tillögunni hefur verið breytt talsvert frá auglýstri tillögu, m.a. hafa mörk á milli íþróttasvæðis (golfvallarsvæðis) og opins svæðis (Skógræktarsvæðis) verið dregin nákvæmar til að taka tillit til trjágróðurs í Smalaholti m.a. í trjásýnireit. Einnig hefur svæði sem skilgreint er sem kirkjugarður í Rjúpnadal verið minnkað umtalsvert.

Málsnúmer 1912201

02

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 4. Stígakerfi í Upplandi

Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi hjá Landslagi ehf gerðir grein fyrir vinnu við mótun tillögu að breytingum á stígakerfi í Urriðakots og Setbergslandi. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagslagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1903374

03

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

Skipulagsráðgjafarnir, Þráinn Hauksson og Ómar Ívarsson hjá Landslagi kynntu drög að tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem byggir á tillögu að deiliskipulagi Norðurness.

Málsnúmer 1803108

04

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Skipulagsráðgjafarnir, Þráinn Hauksson og Ómar Ívarsson hjá Landslagi ehf kynnti drög að tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.

Málsnúmer 1910408

05

Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2020

Umsókn Garðabæjar um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna stígs í Heiðmörk var synjað.

Málsnúmer 2003349

06

Ferðavenjukönnun fyrir höfuðborgarsvæðið 2019

Ferðavenjukönnun fyrir höfuðborgarsvæðið 2019 lögð fram. Jákvætt að sjá að hlutdeild vistvænna samgangna hefur aukist.