Beint í efni

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilsstaðaland-rammahluti.

Málsnúmer 1804367

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (881). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

3. (881). fundur


Bæjarstjórn Garðabæjar

03

3. (881). fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags. 5. febrúar 2021. Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

05

5. (1963). fundur

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið samþykkt bæjarstjórnar á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland en getur ekki staðfest breytinguna fyrr en niðurstaða liggur fyrir um eftirfarandi atriði.

Tenging í Hnoðraholti, tenging við gatnakerfi Kópavogsbæjar.
Flóðavarnir og ofanvatnslausnir í Vetrarmýri.
Loftgæði íbúðarbyggðar í Vetrarmýri.

Bæjarstjóri upplýsti um að fyrirhugaður fundur með Skipulagsstofnun í dag og í undirbúningi er að halda fund með fulltrúm Kópavogsbæjar.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

06

24. fundur

Kynning hefur farið fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

17. (876). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands - þróunarsvæði B. Tillagan var auglýst samhliða tillögum að nýju deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts, Vetrarmýrar, Rjúpnadals og umhverfiskýrslu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu.

Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á auglýstri tillögu.
Tákn fyrir háspennustreng og helgunarsvæði strengsins bætt við inn á breytingaruppdrátt.
Landnotkunartákn sett á Hnoðraholt fyrir iðnaðarsvæði vegna staðsetningar hitaveitugeyma Veitna. Ákvæði verði sett um að þeir séu niðurgrafnir að miklu leyti og lagaðir vel að aðliggjandi opnum svæðum og nálægri íbúðarbyggð.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 2. mgr. 31. gr. skipulagslaga ásamt innsendum athugasemdum og svörum við þeim. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær."

Bæjarráð Garðabæjar

08

45. (1953). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands - þróunarsvæði B. Tillagan var auglýst samhliða tillögum að nýju deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts, Vetrarmýrar, Rjúpnadals og umhverfiskýrslu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum. Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á auglýstri tillögu.

Tákn fyrir háspennustreng og helgunarsvæði strengsins bætt við inn á breytingaruppdrátt.
Landnotkunartákn sett á Hnoðraholt fyrir iðnaðarsvæði vegna staðsetningar hitaveitugeyma Veitna. Ákvæði verði sett um að þeir séu niðurgrafnir að miklu leyti og lagaðir vel að aðliggjandi opnum svæðum og nálægri íbúðarbyggð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

12. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands,Þróunarsvæðis B sem er sett fram sem rammahluti aðalskipulags.
Innan skipulagssvæðisins er m.a. gert ráð fyrir miðsvæði með blandaðri byggð í góðum tengslum við nálæga íþróttastarfsemi og almenningssamgöngur. Alls er gert ráð fyrir 2.000 -2.400 íbúðum á svæðinu, samfélagsþjónustu, íþróttastarfsemi, útivistarsvæðum og náttúruverndarsvæði. Lögð er áhersla á vistvænar samgöngur og fjölbreytt útivistarsvæði í góðum tengslum við nálæga byggð og starfsemi. Gert er ráð fyrir að lega Elliðavatnsvegar verði færð fjær Vífilsstaðavatni og útivistarsvæði umhverfis vatnið gefið aukið vægi. Klassískt yfirbragð og sterk sjónræn nærvera Vífilstaðaspítala er eitt af megin kennileitum svæðisins og er gert hátt undir höfði m.a. Vífilsstaðaás, stíg í trjágöngum, sem framlengist frá miðju Vífilsstaðaspítala upp hlíðar Hnoðraholts.
Tillagan var í auglýsingu í samræmi við 1. mgr. 31. gr.og 1.mgr 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 11.júní til og með 7.september 2020. Almennur kynningarfundur var haldinn 27.ágúst og var hann gagnvirkur fjarfundur á Facebook vegna samkomutakmarkana kórónufaraldursins. Samhliða var auglýst tillaga að umhverfisskýrslu samkvæmt 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Samhliða voru auglýstar tillögur að deiliskipulagi Hnoðraholts norður, Vetrarmýrar og Rjúpnadals.
Lagðar fram innsendar athugasemdir og umsagnir.
Lagðar fram tillögur að svörum við innsendum athugasemdum og umsögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir eftirfarandi breytingar/lagfæringar á auglýstri tillögu:
Tákn fyrir háspennustreng og helgunarsvæði strengsins bætt við inn á breytingaruppdrátt.
Landnotkunartákn sett á Hnoðraholt fyrir iðnaðarsvæði vegna staðsetningar hitaveitugeyma Veitna. Ákvæði verði sett um að þeir séu niðurgrafnir að miklu leyti og lagaðir vel að aðliggjandi opnum svæðum og nálægri íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd samþykkir aðalskipulagsbreytinguna með ofangreindum breytingum/lagfæringum í samræmi við 32.grein Skipulagslaga nr.123/2010 ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við lög um mat á umhverfisáætlunum áætlana nr.105/2006.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

11. fundur

Skipulagsráðgjafar Jóhanna Helgadóttir hjá Eflu, Sigurður Einarsson hjá Batteríinu og Þráinn Hauksson hjá Landslagi kynntu hugmyndir að viðbrögðum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Vísað til frekari úrvinnslu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

10. fundur

Skipulagsráðgjafar Batterísins, Landslags og Eflu kynntu greiningu á athugasemdum og umsögnum og viðruðu hugmyndir um möguleg viðbrögð.Lögð fram Húsakönnun Vífilsstaða sem Batteríið ehef hefur unnið. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við húsakönnunina.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

12

36. (1944). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, ásamt umhverfisskýrslu, sem nær til Vífilsstaðalands að lokinni auglýsingu samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfisssviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

14

9. (868). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

15

9. (868). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að taka tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar við auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna Vífilsstaðalands. (Mál nr. 1804367)

Bæjarráð Garðabæjar

16

21. (1929). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að taka tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar við auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna Vífilsstaðalands.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

6. fundur

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags 26.maí þar sem fram kemur niðurstaða stofnunarinnar á athugun tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Vífilsstaðalands.
Gerðar eru athugasemdir við nokkur skipulagstæknileg atriði en ekki við efnislegt innihald tillögunnar. Veitt er heimild til auglýsingar tillögunnar þegar atriðin hafa verið lagfærð eða útskýrð.
Húsakönnun og fornleifaskráning Vífilsstaðalandslagðar fram. Þær munu fylgja sem viðauki við breytingartillögu aðalskipulags sem samþykkt hefur verið að auglýsa.

Leikskólanefnd Garðabæjar

18

14. fundur

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri kynnti aðalskipulag Garðabæjar 2016 til 2030.

Bæjarstjórn Garðabæjar

19

7. (866). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til þróunarsvæðis B, rammahluti aðalskipulags og til Vífilsstaðahrauns (Svínahrauns). Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Tillagan skal liggja frammi hjá Skipulagsstofnun og á bæjarskrifstofunum. Tillagan skal auglýst á vef Garðabæjar og þar skal koma fram að hægt er að gera athugasemdir við tillöguna innan ákveðins frests.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

20

22. fundur

Ráðgjafateymi Batterísins, Landslags og Eflu gerðu grein fyrir tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B auk Vífilsstaðahrauns. Tillagan er sett fram sem rammahluti Aðalskipulags. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla. Forkynning hefur farið fram. Tillögunni hefur verið breytt talsvert frá auglýstri tillögu, m.a. hafa mörk á milli íþróttasvæðis (golfvallarsvæðis) og opins svæðis (Skógræktarsvæðis) verið dregin nákvæmar til að taka tillit til trjágróðurs í Smalaholti m.a. í trjásýnireit. Einnig hefur svæði sem skilgreint er sem kirkjugarður í Rjúpnadal verið minnkað umtalsvert.

Bæjarráð Garðabæjar

21

14.(1923). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til þróunarsvæðis B, rammahluti aðalskipulags og til Vífilsstaðahrauns (Svínahrauns). Tillagan skal send Skipulagsstofnun til athugunar samkvæmt 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Tillagan skal liggja frammi hjá Skipulagsstofnun og bæjarskrifstofunum. Tillagan skal auglýst á vef Garðabæjar og þar skal koma fram að hægt er að gera athugasemdir við tillöguna innan ákveðins frests.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

22

4. fundur

Ráðgjafateymi Batterísins, Landslags og Eflu gerði grein fyrir tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B auk Vífilsstaðahrauns. Tillagan er sett fram sem rammahluti Aðalskipulags. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla. Forkynning hefur farið fram. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir ábendingum og sem hafa borist tækni-og umhverfissviði og samtali sem hefur átt sér stað síðan að forkynningu lauk.
Tillögunni hefur verið breytt talsvert frá auglýstri tillögu, m.a. hafa mörk á milli íþróttasvæðis (golfvallarsvæðis) og opins svæðis (Skógræktarsvæðis) verið dregin nákvæmar til að taka tillit til trjágróðurs í Smalaholti m.a. í trjásýnireit. Einnig hefur svæði sem skilgreint er sem kirkjugarður í Rjúpnadal verið minnkað umtalsvert.
Tillögunni vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.36.gr. og 31.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

23

3. fundur

Skipulagsráðgjafar, Jóhanna Helgadóttir Eflu og Þráinn Hauksson Landslagi kynntu stöðu á mótun tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands og verður sett fram sem rammahluti aðalskipulags.
Tillögu vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og hjá tækni- og umhverfissviði.
Tillögu vísað til kynningar í umhverfisnefnd,íþrótta- og tómstundaráði, grunnskólanefnd og leikskólanefnd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

24

2. fundur

Formaður skipulagsnefndar gerði grein fyrir fundi með formanni skipulagsráðs og skipulagsstjóra Kópavogs og formanni Skógræktarfélags Garðabæjar. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með Vegagerðinni,SSH, Hafnarfirði og Kópavogi vegna stofnbrautakerfis. Ábendingar sem borist hafa lagðar fram. Umsögn Vegagerðarinnar dags.29.janúar sl lög fram. Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

25

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands (Þróunarsvæðis B) að lokinni forkynningu.
Einnig lagðar fram tillögur að deiliskipulagi Hnoðraholts norðurhluta, Vetrarmýrar og Rjúpnadals sem forkynntar voru samhliða aðalskipulagsbreytingunni.
Lagðar fram ábendingar sem borist hafa. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundum með skipulagsráði Kópasvogs og með Vegagerðinni og SSH þar sem tillögurnar voru ræddar. Umsagnir þessara aðila hafa enn ekki borist en þær eru væntanlegar innan skamms.
Ábendingum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

26

19. fundur

Skipulagsstjóri kynnir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta Vífilsstaðarlands.
Umhverrisnefnd leggur til að gróðurgreining fari fram í smalaholtinu áður en svæðið verði deiliskipulagt.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

27

15. fundur

Lagt fram til kynningar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

28

17. (857). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaðilum á almennum fundi samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Samhliða skal kynna tillögur að nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar, norðurhluta Hnoðraholts og Rjúpnadals.

Bæjarráð Garðabæjar

29

44. (1905). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaðilum á almennum fundi samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Samhliða skal kynna tillögur að nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar, norðurhluta Hnoðraholts og Rjúpnadals.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

30

16. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilsstaðalands. Skipulagsteymi Batterísins,Landslags og Eflu hefur unnið að mótun tillögunnar með tækni-og umhverfissviði. Jóhanna Helgadóttir hjá Eflu gerði grein fyrir tillögunni. Snorri Vilhjálmsson golfvallarhönnuður gerði grein fyrir drögum að fyrirkomulagi golfvallar GKG sem er lögð til grundvallar landnotkunarreita. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundum með fulltrúm GKG og Skógræktarfélags Garðabæjar sem hafa haft áhrif á þróun tillögunnar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal forkynnt samhliða tillögum að deiliskipulagi Vetrarmýrar, Hnoðraholts norður og Rjúpnadals. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur. Tillögunni vísað til kynningar og umfjöllunar í umhverfisnefnd og íþrótta-og tómstundaráði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

31

15. fundur

Sigurður Einarsson og Bergþóra Kristinsdóttir úr skipulagsteymi Batterísins, Eflu og Landslags kynntu stöðu á mótun breytingartillögu aðalskipulags sem sett verður fram sem rammahluti aðalskipulags og nær til Vífilsstaðalands.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði, skipulagsráðgjöfum og golfvallarhönnuði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

32

12. fundur

Skipulagsráðgjafar gerðu grein fyrir mótun tillögu að breytingu aðalskipulags sem verður sett fram sem rammahluti aðalskipulags.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

33

9. fundur

Aðal og deiliskipulagsráðgjafarnir Þráinn Hauksson, Jóhanna Helgadóttir og Bergþóra Kristinsdóttir gera grein fyrir stöðu vinnu við mótun tillagna að rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands og deiliskipulagstillögu að nyrsta hluta Hnoðraholts og Rjúpnadal.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

34

5. fundur

Ráðgjafateymi kynnti tillögur að aðalskipulagsbreytingu þróunarsvæðis B sem verður sett fram sem rammahluti aðalskipulags. Jóhanna Helgadóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu ehf gerði grein fyrir drögum að aðalskipulagsbreytingunni sem nær til þróunarsvæðis B, Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu ehf gerði grein fyrir drögum að deiliskipulagi Norðurhluta Hnoðraholts og Vetrarmýrar og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir drögum að deiliskipulagi fyrir kirkjugarðssvæði og meðferðarstofnun í Rjúpnadal og á Vífilsstaðahálsi. Þráinn greindi einnig frá samráði við Umhverfisstofnun um breytingar á friðlandsmörkum við norðanvert Vífilsstaðavatn og hugmyndum um göngutengingar yfir Reykjanesbraut.
Samráðsfundir hafa einnig verið haldnir með Vegagerðinni.
Skipulagsnefnd leggur til að drög að deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts og drög að rammahluta aðalskipulags verði kynnt íbúum í Hnoðraholti á sérstökum fundi. Tillögum öllum vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafateyminu og tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

35

14. fundur

Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna lýsingar verkefnisins. Ábendingum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og hjá skipulagsráðgjöfum.

Bæjarráð Garðabæjar

36

31. (1846). fundur

Lögð fram til kynningar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

37

10. fundur

Lagðar fram þær ábendingar og umsagnir sem borist hafa vegna tillögu að verkefnislýsingu aðalskipulagsbreytingarinnar. Skipulagsráðgjöfum og skipulagsstjóra falið að vinna áfram að mótun rammaskipulagstillögu Vífilsstaðalands sem verður grundvöllur aðalskipulagsbreytingartillögu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

38

8. (830). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gerðar rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland og Hnoðarholt þar sem lýst er þróun nýrrar byggðar og einstaka deiliskipulagsáföngum, sbr. 4. mgr. 28. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

39

16. (1831). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gerðar rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilstaðaland og Hnoðarholt þar sem lýst er þróun nýrrar byggðar og einstaka deiliskipulagsáföngum, sbr. 4. mgr. 28. gr. skipulagslaga.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

40

7. fundur

Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu að 1.breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030. Lagt er til að breytingin felist í að unnið verði með skipulagsbreytingu sem nær til Vífilsstaðalands sem rammahluta aðalskipulagsins. Deiliskipulagsáætlanir verði í kjölfarið unnar í fleiri áföngum. Byggt verður á áherslum aðalskipulagsins og vinningstillögu úr rammaskipulagssamkeppni sem fram fór á síðasta ári.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr.30.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 og felur tækni-og umhverfissviði að kynna lýsinguna almenningi og afla lögbundinna umsagna.