19. fundur
19. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
18.12.2019
Kl. 16:30 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030-Breyting 1-Vífilstaðaland-rammahluti.
Skipulagsstjóri kynnir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta Vífilsstaðarlands.
Umhverrisnefnd leggur til að gróðurgreining fari fram í smalaholtinu áður en svæðið verði deiliskipulagt.
02
Rjúpnadalur, dsk kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.
Skipulagsstjóri kynnir deiliskipulagstillögu kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.
03
Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar.
Skipulagsstjóri kynnir tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar.
04
Hnoðraholt norður deiliskipulag
Skipulagsstjóri kynnir tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður.
05
Ársfundur náttúruverndarnefnda 2019
Linda Björk Jóhannsdóttir kynnir skýrslu Garðabæjar - náttúruverndarnefnda.
Fylgiskjöl
08
Loftlagsstefna Garðabæjar
Loftlagsmál eru mikilvægur þáttur í umhverfismálum Garðabæjar enda er það eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar. Umhverfisnefnd vísar vinnu við gerð loftlagsstefnu Garðabæjar til umhverfis- og tæknisviðs og að gerð verði aðgerðaráætlun um samdrátt í losun. Markmiðið með stefnunni er að Garðabær verði kolefnishlutlaus árið 2040.
09
Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Lagt fram.