3. (881). fundur
3. (881). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
18.02.2021
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Björg Fenger
- Gunnar Einarsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Guðjón Pétur Lýðsson
- Harpa Þorsteinsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundargerð bæjarstjórnar frá 4. febrúar er lögð fram.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 9/2 ´21
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., bréf Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Með vísan til athugasemda Skipulagsstofnunar við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna rammahluta Vífilsstaðalands, sbr. bréf stofnunarinnar, dags. 5. febrúar 2021 samþykkir bæjarstjórn Garðabæjar eftirfarandi tillögu að breytingum á samþykktri tillögu sem nú er til meðferðar hjá Skipulagsstofnun. Tillagan byggir á samkomulagi sveitarfélaganna Kópavogs og Garðabæjar og er unnin í samráði við Skipulagsstofnun með fyrirvara um samþykkt bæjarstjórnar. Tillagan nær einnig til breytinga á samþykktri tillögu að nýju deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.
Aðalskipulagsbreyting:
Í stað tveggja valkosta á hæðarlegu Vorbrautar neðan við fjölbýlishús í Þorrasölum í Kópavogi verði ákvæði um að Vorbraut verði sett í stokk á þeim stað eða fundin ný lega við mótun deiliskipulags golfvallar- og útivistarsvæðis með það að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif Vorbrautar á íbúðarbyggð í Þorrasölum (sett fram í greinargerð í kafla 4.2.5. Göturými og á mynd 35 sem og með táknum fyrir stokk á breytingaruppdrætti aðalskipulags).
Bætt verði við ákvæði um að við hönnun golfvallar skuli tryggja góða tengingu á milli golfbrauta í Leirdal og í Mýrinni m.t.t. hæðarlegu og golfhringja frá golfskála (sett fram í greinargerð í kafla 4.5.2.2 þar sem fjallað er um Vetrarmýri).
Breyting deiliskipulags:
Í stað tveggja valkosta á hæðarlegu Vorbrautar neðan við fjölbýlishús í Þorrasölum í Kópavogi verði ákvæði um að Vorbraut verði sett í stokk á þeim stað (sett fram á á deiliskipulagsuppdrætti og í greinargerð í kafla 2.6.1 Gatnakerfi)."
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 7. tl., Bréf Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland og framlagða tillögu. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.
"Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans greiða atkvæði gegn þessari tillögu á þeim forsendum að engin kostnaðargreining liggur fyrir né hver greiði framkvæmdina. Í samkomulaginu við Kópavogsbæ sem hér er lagt fram til afgreiðslu er hvergi minnst á það hvar ábyrgðin liggur þegar kemur að kostnaðinum við framkvæmdina.
Þá hefur umræðan ekki farið fram eða verið kynnt, um þá mögulegu ákvörðun um að leggja veginn í stokk. Hér er um að ræða ákvörðun sem ríkir mikil óvissa um kostnað og endanlega útfærslu. Krafa okkar er fagleg og ábyrg stjórnsýsla þegar ákvarðanir sem þessar eru teknar."
Þá ræddi Sara Dögg, 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu og 12. tl., reglur Garðabæjar um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Almar Guðmundsson, ræddi 10. tl., starfsemi búsetuþjónustu fyrir fötluð börn að Sigurhæð 12. Almar þakkaði starfsmönnum á fjölskyldusviði sérstaklega fyrir þeirra þátt við undirbúning og framkvæmd verkefnisins. Þá ræddi Almar 7. tl., bréf Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland og 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Guðjón Pétur Lýðsson, ræddi 1. tl., 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Tillaga að breytingu á samþykktri tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna rammahluta Vífilsstaðalands og breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts er samþykkt með átta atkvæðum. (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) Þrír greiða atkvæði á móti tillögunni. (SDS,HÞ,GPL)
Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða.
1.7 - 1804367 - Bréf Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland, dags. 05.02.21.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 16/2 ´21.
Björg Fenger ræddi 12. tl., samning um Bláfjallarútuna,
Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., bréf Bessastaðasóknar um endurnýjun samnings um æskulýðsstarf.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., útboð á þjónustu iðnaðarmanna.
Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., útboð á þjónustu iðnaðarmanna og 13. tl., sölu lóða í Vetrarmýri.
Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.
2.2 - 2102023 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóða við Eskiás.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga sem gerir ráð fyrir að hæðir húsa við Eskiás 2, 4 og 6 lækki um eina hæð og heimilað verði að fjölga íbúðum í öðrum húsum sem nemur fækkun íbúða vegna lækkunar um hæð. Hámarkshæðir annarra húsa verða óbreyttar. Byggingarreitir lóðanna nr. 8 og 10 breytast þannig að þar verða lokaðir innigarðar. Heildarfjöldi íbúða verður óbreyttur eða 276 íbúðir. (Mál nr. 2102023)
Fylgiskjöl
2.3 - 2010080 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis í Garðahverfi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna svæðis Grænagarðs (1.09) í Garðahverfi.
Tillagan skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd á þeim svæðum þar sem starfandi er slík nefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis. (Mál nr. 2010080)
Fylgiskjöl
2.4 - 2010078 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingarreita.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á lóðarmörkum og byggingarreitum í Katrínarkoti, Háteigi, Hausastöðum og Pálshúsum, breyttri afmörkun Grænagarðs og að skilgreind verði lóð umhverfis núverandi íbúðarhús í Grænagarði.
Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat, skal kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt.
Tillagan skal kynnt samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar. (Mál nr. 2010078)
Fylgiskjöl
2.5 - 2004418 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna leiksvæðis.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna breyttrar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands á svæði sparkvallar sem verður þá skilgreint sem leiksvæði og sparkvöllur, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum íbúða við Löngulínu 13, 15, 17, 19, 21, 23, 27 og 29 og Vesturbrú 1. (Mál nr. 2004418)
Fylgiskjöl
2.6 - 2010441 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Keldugötu 2, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og tillöguna með breytingu frá auglýstri tillögu er varðar innkeyrslu lóðarinnar.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 2010441)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 10/2 ´21.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., kynningu á framkvæmdum við fjölnota íþrótthús, 11. tl., hvatapeninga 2020 og 14. tl., leiðtogar og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ. Björg Fenger upplýsti að hlaupahópur Stjörnunnar hefur hafið undirbúning að Stjörnuhlaupinu vorið 2021.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 4. tl., skýrslu starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara og 14. tl., leiðtogar og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 11. tl., hvatapeninga 2020 og 14. tl., leiðtogar og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., skýrslu starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara og þjónustu við íbúa.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., lýðheilsu- og forvarnastefnu Garðabæjar og 14. tl., leiðtogar og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ.
Guðjón Pétur Lýðsson, ræddi 1. tl., kynningu á framkvæmdum við fjölnota íþróttahús.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 6. tl., tillögu um lýðheilsu ungmenna.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., skýrslu starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á framkvæmdum við fjölnota íþróttahús og svaraði fyrirspurn.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu á framkvæmdum við fjölnota íþróttahús, 4., tl., skýrslu starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara, 13. tl., samning um Bláfjallarútuna og 14. tl., leiðtogar og fyrirmyndir í kvennaíþróttum í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 5/2 ´21.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., viðræður við ríkið varðandi endurnýjun samnings um Hönnunarsafn Íslands og 3. tl., vetrarhátíð. Gunnar Valur þakkaði menningarfulltrúa fyrir framkvæmd viðburða á vetrarhátíð í Garðabæ. Þá ræddi Gunnar Valur 6. tl., jazztónleika í tónlistarskólanum fyrir grunnskólabörn og barnamenningarhátíð 2021.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 11/2 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og 5. tl., heimili fyrir börn að Sigurhæð 12.
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., heimili fyrir börn að Sigurhæð 12 og 2. tl., fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Gunnar Einarsson, upplýsti að SSH er að undirbúa að halda stutta fræðslufundi á næstunni og m.a. um NPA samninga. Þá ræddi Gunnar 2. tl., fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl., fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Fundargerðin fram lögð.
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/2 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs og 6. tl., samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 1. tl., drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs og 5. tl., skýrslu um þörf fyrir sorpbrennslustöðvar á Íslandi
Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., skýrslu um þörf fyrir sorpbrennslustöðvar á Ísland.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð öldungaráðs frá 8/2 ´21.
Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., gjaldskrá stuðningsþjónustu, 5. tl., skýrslu starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar SSH frá 1/2 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl. málefni skíðasvæðanna.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., málefni skíðasvæðanna.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 4. tl., málefni skíðasvæðanna.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 20/1 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
12
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 29/1 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., samræmda úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu, 5. tl., framtíðarskipan endurvinnslustöðva, 6. tl., framtíðarsýn Góða hirðisins og 7. tl., stöðu mála varðandi útflutning á plasti.
Fundargerðin lögð fram.
15
Reglur Garðabæjar um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Bæjarstjórn samþykkir reglur Garðabæjar um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
16
Lýðheilsu- og forvarnastefna Garðabæjar.
Björg Fenger, fylgdi úr hlaði lýðheilsu- og forvarnastefnu Garðabæjar og sagði frá vinnu við gerð stefnunnar og kynningu í nefndum bæjarins.
Björg Fenger þakkaði starfsmönnum fræðslu og menningarsviðs fyrir þeirra vinnu við undirbúning og gerð stefnunnar.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls og lýsti ánægju með samþykkt stefnunnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða lýðheilsu- og forvarnastefnu Garðabæjar.