Fundargerð bæjarráðs frá 9/2 ´21
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (881). fundur
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., bréf Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Með vísan til athugasemda Skipulagsstofnunar við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna rammahluta Vífilsstaðalands, sbr. bréf stofnunarinnar, dags. 5. febrúar 2021 samþykkir bæjarstjórn Garðabæjar eftirfarandi tillögu að breytingum á samþykktri tillögu sem nú er til meðferðar hjá Skipulagsstofnun. Tillagan byggir á samkomulagi sveitarfélaganna Kópavogs og Garðabæjar og er unnin í samráði við Skipulagsstofnun með fyrirvara um samþykkt bæjarstjórnar. Tillagan nær einnig til breytinga á samþykktri tillögu að nýju deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.
Aðalskipulagsbreyting:
Í stað tveggja valkosta á hæðarlegu Vorbrautar neðan við fjölbýlishús í Þorrasölum í Kópavogi verði ákvæði um að Vorbraut verði sett í stokk á þeim stað eða fundin ný lega við mótun deiliskipulags golfvallar- og útivistarsvæðis með það að markmiði að lágmarka umhverfisáhrif Vorbrautar á íbúðarbyggð í Þorrasölum (sett fram í greinargerð í kafla 4.2.5. Göturými og á mynd 35 sem og með táknum fyrir stokk á breytingaruppdrætti aðalskipulags).
Bætt verði við ákvæði um að við hönnun golfvallar skuli tryggja góða tengingu á milli golfbrauta í Leirdal og í Mýrinni m.t.t. hæðarlegu og golfhringja frá golfskála (sett fram í greinargerð í kafla 4.5.2.2 þar sem fjallað er um Vetrarmýri).
Breyting deiliskipulags:
Í stað tveggja valkosta á hæðarlegu Vorbrautar neðan við fjölbýlishús í Þorrasölum í Kópavogi verði ákvæði um að Vorbraut verði sett í stokk á þeim stað (sett fram á á deiliskipulagsuppdrætti og í greinargerð í kafla 2.6.1 Gatnakerfi)."
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 7. tl., Bréf Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland og framlagða tillögu. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.
"Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans greiða atkvæði gegn þessari tillögu á þeim forsendum að engin kostnaðargreining liggur fyrir né hver greiði framkvæmdina. Í samkomulaginu við Kópavogsbæ sem hér er lagt fram til afgreiðslu er hvergi minnst á það hvar ábyrgðin liggur þegar kemur að kostnaðinum við framkvæmdina.
Þá hefur umræðan ekki farið fram eða verið kynnt, um þá mögulegu ákvörðun um að leggja veginn í stokk. Hér er um að ræða ákvörðun sem ríkir mikil óvissa um kostnað og endanlega útfærslu. Krafa okkar er fagleg og ábyrg stjórnsýsla þegar ákvarðanir sem þessar eru teknar."
Þá ræddi Sara Dögg, 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu og 12. tl., reglur Garðabæjar um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Almar Guðmundsson, ræddi 10. tl., starfsemi búsetuþjónustu fyrir fötluð börn að Sigurhæð 12. Almar þakkaði starfsmönnum á fjölskyldusviði sérstaklega fyrir þeirra þátt við undirbúning og framkvæmd verkefnisins. Þá ræddi Almar 7. tl., bréf Skipulagsstofnunar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna rammahluta um Vífilsstaðaland og 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Guðjón Pétur Lýðsson, ræddi 1. tl., 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., frumdragaskýrslu um Borgarlínu.
Tillaga að breytingu á samþykktri tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna rammahluta Vífilsstaðalands og breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts er samþykkt með átta atkvæðum. (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) Þrír greiða atkvæði á móti tillögunni. (SDS,HÞ,GPL)
Fundargerðin sem er 15 tl., er samþykkt samhljóða.