Lýðheilsu- og forvarnastefna Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (881). fundur
Björg Fenger, fylgdi úr hlaði lýðheilsu- og forvarnastefnu Garðabæjar og sagði frá vinnu við gerð stefnunnar og kynningu í nefndum bæjarins.
Björg Fenger þakkaði starfsmönnum fræðslu og menningarsviðs fyrir þeirra vinnu við undirbúning og gerð stefnunnar.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls og lýsti ánægju með samþykkt stefnunnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða lýðheilsu- og forvarnastefnu Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. (1964). fundur
Bæjarráð vísar tillögu íþrótta- og tómstundaráðs að nýrri lýðheilsu- og forvarnastefnu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
28. fundur
Forvarnastefna hefur nú verið kynnt almenningi á vef Garðabæjar eftir að hafa verið til umfjöllunar hjá nefndum bæjarins og innan stjórnsýslunnar frá hausti 2020.
Tillaga er um að breyta heiti stefnunnar í "Lýðheilsu- og forvarnastefnu" þar sem stefnan nær til mun breiðara sviðs bæði í aldursflokkum og málefnum en fyrri stefna. Engin breyting er gerð á því sem kynnt hefur verið þó nafninu hafi verið breytt, enda eru lýðheilsumál forvarnir.
Forvarnastefnan hefur nú verið kynnt almenningi á vef Garðabæjar. Áður hafði stefnan verið til umfjöllunar hjá nefndum bæjarins og innan stjórnsýslunnar frá hausti 2020.
Tillaga er um að breyta heiti stefnunnar í "Lýðheilsu- og forvarnastefnu" þar sem stefnan nær til mun breiðara sviðs bæði í aldursflokkum og málefnum en fyrri stefna. Engin breyting er gerð á því sem kynnt hefur verið þó nafninu hafi verið breytt, enda eru lýðheilsumál forvarnir í víðari skilningi.
ÍTG samþykkir fyrirliggjandi drög af stefnunni og vísar henni til bæjarstjórnar.