18. fundur
18. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
13.11.2019
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að umhverfisrask verði sem minnst og að farið verði eftir ábendingum fuglafræðinga um mótvægisaðgerðir vegna golfvallar, þ.e. tjarnir, hólmar og áframhaldandi endurheimt votlendis við Kasthúsatjörn ásamt því að fyllt verði í skurði á golfvallarsvæðinu. Hugað verði að því að rask milli golfbrauta verði sem minnst ásamt raski á framkvæmdatíma. Umhverfisnefnd telur jákvætt að á Seylunni verði fallið frá aðstöðu fyrir siglingar í tengslum við smábátahöfn og möguleika á aðstöðu fyrir hestamenn.
03
Drög að breytingum á reglugerð um mat á umhverfisáhrifum og reglugerð um framkvæmdaleyfi.
Lagt fram.
04
Styrkumsókn vegna hleðslubúnaðar fyrir rafbíla
Umhverfisnefnd mælir með að svo stöddu, að tryggt verði að íbúar hafi jafnt aðgengi að hleðslustöðvum í bæjarlandinu. Lagt er til að unnið verði að kortlagningu og uppbyggingaráætlun slíkra stöðva og það kynnt bæjarbúum. Vísað til nánari vinnslu hjá Tækni- og umhverfissvið.
05
Veiðikortið 2020
Umhverfisnefnd leggur til að samstarfi við Veiðikortið verði haldið áfram árið 2020.
06
Ársskýrsla - Skógræktarfélags Reykjarvíkur 2018
09
Heiðmörk - samningur - Skógræktarfélag Reykjarvíkur
Umhverfisnefnd samþykkir efnisleg drög af samningi.
10
Tillaga Garðabæjarlistans um að veita fyrirtækjum eða stofnunum í Garðabæ viðurkenningu sem ná góðum árangri í að minnka plastnotkun, flokka, endurnýta og sporna við matarsóun.
Umhverfisnefnd tekur jákvætt í tillöguna og að tillagan verði hluti af verkefninu Garðabær gegn sóun.