Lyngmóar 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
4. (2011). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Torfa Geir Símonarsyni, kt. 090589-2539, leyfi til að loka svölum og gera sólstofu í íbúð 0101 í fjölbýlishúsinu við Lyngmóa 3.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
13. (872). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lokunar svala íbúða á 1 hæð og framkvæmda við pall við fjölbýlishúsið að Lyngmóum 3. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd þar sem vakin var athygli á að framkvæmdir væru þegar hafnar og af þeim stafi óþægindi og óþrifnaður. Mál nr. 2003086)
Bæjarráð Garðabæjar
03
36. (1944). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lokunar svala íbúða á 1 hæð og framkvæmda við pall við fjölbýlishúsið að Lyngmóum 3. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd þar sem vakin var athygli á að framkvæmdir væru þegar hafnar og af þeim stafi óþægindi og óþrifnaður.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
9. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa. Umsóknin gerir ráð fyrir lokun svala íbúða á 1.hæð og palli með skjólveggjum fyrir framan. Pallur og íbúð tengist með tröppum. Tillaga var grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi í Móum.
Í athugasemd kemur fram að framkvæmdir hafi verið hafnar þegar grenndarkynning hafi farið fram og er þeim að mestu lokið. Skipulagsnefnd gerir athugasemdir við að framkvæmdir hafi fari fram í óleyfi og þarf byggingarfulltrúi að óska eftir skýringum á því. Ekki eru gerðar athugasemdir við framkvæmdina sem slíka.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við það að byggingarleyfi verði veitt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
8. fundur
Grenndarkynningu lýkur 20 ágúst
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Tvær athugasemdir hafa borist og þær lagðar fram. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
9. (868). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi á lóð við Lyngmóa 3 sem gerir ráð fyrir sérnotareitum á lóð og aðgengi frá íbúðum á neðstu hæð að þeim, verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr. 2003086)
Bæjarráð Garðabæjar
08
21. (1929). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir sérnotareitum á lóð og aðgengi frá íbúðum á neðstu hæð að þeim, verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
6. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir sérnotareitum á lóð og aðgengi frá íbúðum á neðstu hæð að þeim. Gert er ráð fyrir að B-rými svala breytist í A-rými.
Tillögu vísað til grenndarkynningar sem byggingarleyfisumsókn í hverfi án deiliskipalags í gildi. Grenndarkynna skal eigendum að Lyngmóum 1 og 5.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
11
4. fundur
Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa sem vinnur að mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir Lyngmóa, Hrísmóa og Kjarrmóa.