Skipulag - Krókur Álftanesi, deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (857). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Krók á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
44. (1905). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Krók á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
16. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi raðhúsabyggðar sunnan og austan Sviðholts sem hafa verið lagfærðar í kjölfar ábendinga Skipulagsstofnunar. Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags.16.ágúst sl. Skipulagsnefnd telur að lagfæringarnar varði ekki efnislegt innihald tillögunanr og því ekki ástæða til þess að auglýsa tillöguna að nýju. Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemdir við lagfæringar og telur þær bæta framsetningu tillögunnar verulega.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
6. (846). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Krók á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Íbúðum (raðhúsum) fækki í Króki um 3 (Svanamýri 9 og Gásamýri 23 og 25).
Gásamýri 31, 29 og 27 verði hliðrað til suðurs.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
05
13. (1874). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Krók á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi breytingar á upphaflegri tillögu.
Íbúðum (raðhúsum) fækki í Króki um 3 (Svanamýri 9 og Gásamýri 23 og 25)
Gásamýri 31, 29 og 27 verði hliðrað til suðurs.
(Gildandi deiliskipulag sem staðfest var árið 2007 gerir ráð fyrir allt að 307 íbúðum á landnotkunarreit 1.23 í aðalskipulagi. Eftir breytingu á auglýstri tillögu sem lögð er til þá fækkar íbúðum um 19 og verða þá 264 íbúðir innan landnotkunarreitsins.)
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
17. (839). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Króks á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 54 íbúðum í raðhúsum.
Bæjarráð Garðabæjar
09
44. (1859). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Króks á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 54 íbúðum í raðhúsum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
14. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Króks sem afmarkast af Suðurnesvegi, Breiðumýri, Sviðholti og byggð við Klukkuholt og Birkiholt
Gert er ráð fyrir allt að 54 íbúðum í 7 raðhúsalengjum.Heiti gatna samkvæmt tillögu Svanamýri og Gásamýri.
Tillagan hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynntir tillögu og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem borist hafa eftir því sem unnt var.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.