Skipulag - Kumlamýri Álftanesi, deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (857). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
44. (1905). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
16. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi parhúsabyggðar í Kumlamýri sem hafa verið lagfærðar í kjölfar ábendinga Skipulagsstofnunar. Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags.16.ágúst sl Skipulagsnefnd telur að lagfæringarnar varði ekki efnislegt innihald tillögunanr og því ekki ástæða til þess að auglýsa tillöguna að nýju. Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemdir við lagfæringar og telur þær bæta framsetningu tillögunnar verulega.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
6. (846). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Hámarkshæð parhúsa í Kumlamýri lækki um 1,0 m (verði 7,5 m). Göngustígur í gegnum Kumlamýri færist suður fyrir byggðina.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
05
13. (1874). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi breytingar á upphaflegri tillögu.
Hámarkshæð parhúsa í Kumlamýri lækki um 1,0 m (verði 7,5 m) Göngustígur í gegnum Kumlamýri færist suður fyrir byggðina.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
17. (839). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Kumlamýrar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 40 íbúðum í parhúsum.
Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
09
44. (1859). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Kumlamýrar á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 40 íbúðum í parhúsum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
14. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Kumlamýrar sem afmarkast af Norðurnesvegi, Álftanesvegi og byggð við Kirkjubrekku og Tjarnarbrekku.
Gert er ráð fyrir allt að 40 íbúðum í 20 parhúsum. Tillagan gerir ráð fyrir því að gatan verði nefnd Kumlamýri eins og örnefni á þessum stað.
Tillagan hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynntir tillögu og hefur verið tekið tillit til ábendinga sem borist hafa eftir því sem unnt var.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.