Beint í efni

Skipulag - Helguvík Álftanesi, deiliskipulag

Málsnúmer 1811133

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

17. (857). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Helguvík á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

44. (1905). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringar og uppfærslur gagna sem fylgja tillögu sem samþykkt hefur verið sem nýtt deiliskipulag fyrir Helguvík á Álftanesi. Deiliskipulagið skal sent til áframhaldandi meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

16. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi einbýlishúsabyggðar á opnu svæði vestan Suðurnesvegar sem hafa verið lagfærðar í kjölfar ábendinga Skipulagsstofnunar. Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags.16.ágúst sl. Skipulagsnefnd telur að lagfæringarnar varði ekki efnislegt innihald tillögunnar og því ekki ástæða til þess að auglýsa tillöguna að nýju. Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemdir við lagfæringar og telur þær bæta framsetningu tillögunnar verulega.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

6. (846). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Helguvík á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:

Leiðrétt er misræmi í auglýstri tillögu milli uppdráttar og greinargerðar hvað varðar hámarkshæð einbýlishúsa í Helguvík. Rétt er hæð 7,5 eins og gram kom í greinargerð.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Bæjarráð Garðabæjar

05

13. (1874). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Helguvík á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Leiðrétt er misræmi í auglýstri tillögu milli uppdráttar og greinargerðar hvað varðar hámarkshæð einbýlishúsa í Helguvík. Rétt er hæð 7,5 eins og hún kom fram í greinargerð.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

4. fundur

Sjá bókun við fundarlið 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

2. fundur

Sjá bókun við fundarlið nr. 1.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

17. (839). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Helguvíkur á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 23 einbýlishúsum.

Bæjarráð Garðabæjar

09

44. (1859). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Helguvíkur á Álftanesi. Í tillögunni er gert ráð fyrir 23 einbýlishúsum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

14. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Helguvíkur sem afmarkast af Suðurnesvegi,Höfðarbraut og byggð við Sviðholtsvör.
Gert er ráð fyrir allt að 23 einbýlishúsum við tvær götur sem hljóta heitin Þórukot og Halakot samkvæmt tillögunni.
Tillagan hefur breyst óverulega frá forkynntri tillögu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samr 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.