Beint í efni

Álftaneskaffi - stækkun - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 1903120

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

14. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

8. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir stækkun á eldhúshluta veitingahússins Álfteneskaffi að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Lagt fram erindi Íslandsbanka þar sem fram kemur að bankinn sem landeigandi í Breiðumýri geri ekki athugasemd við stækkunina. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

6. (846). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús Álftaneskaffi verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

04

13. (1874). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús Álftaneskaffi verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Lögð fram fyrirspurn um stækkun á Álftaneskaffi um 15 m2 á bakhlið.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn í samræmi við 1. mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem tillaga er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag eins og veitingastaðurinn. Umsækjanda er kunnugt um að samkvæmt fyrirliggjandi deiliskiplagstillögu þá er kaffihús á þessum stað víkjandi mannvirki. Tryggt sé að viðbygging sé innan lóðar.