Beint í efni

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi tillögu deiliskipulagi fyrir Holtstún á Álftanesi, dags. 17.04.19.

Málsnúmer 1704011

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

17. (1878). fundur

Lagt fram.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

7. (847). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

7. (847). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu á tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Holtstún á Álftanesi þar sem nú liggur fyrir að tillagan er ekki í samræmi við ákvæði aðalskipulags.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

6. fundur

“Lagt fram bréf Skipulagstofnunar, dags.17.apríl 2019 þar sem gerð er athugasemd við að birt sé auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins þar sem í lýsingu á landnotkunarreitum 1.10.íb (Tjörn,Asparvík,Stekkur) og 1.11.íb (Eyvindarholt). Í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 kemur fram að svæðin séu “fullbyggð?.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir því að um mistök hafi verið að ræða við framsetningu texta í aðalskipulagi enda lengi legið fyrir að byggja skuli á viðkomandi landnotkunarflekum eins og deiliskipulagið gerir ráð fyrir. Í svari við athugasemd nr. 24. við afgreiðslu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 kemur skýrt fram að á umræddum landnotkunarreit er gert fyrir uppbyggingu og er það í samræmi við eldra aðalskipulag Sveitarfélagsins Álftaness og áform landeigenda.

Skipulagsnefnd felur tækni-og umhverfissviði að undirbúa breytingu á aðalskipulagi til að tryggja framgang tillögu að deiliskipulagi fyrir Holtstún.“

Bæjarráð Garðabæjar

05

14. (1875). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Holtstún á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu.

Lágmarkshæðarkóti hækkar úr 4,0 m.y.s. í 4,2 m.y.s.
Hliðrun er gerð á aðkomu Asparvíkur að beiðni landeigenda.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Bæjarráð Garðabæjar

06

31. (1846). fundur

Afgreiðslu frestað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Holtstúns ásamt umsögnum Vegagerðarinnar, Heilbrigðiseftirlits og Minjastofnunar.
Skipulagsnefnd mælir með því að sá hæðarkóti sem Vegagerðin leggur til sem lágmarkshæð verði notaður eða 4,2 mys í stað 4,0 mys eins og auglýst tillaga gerir ráð fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindri breytingu og lagfæringu á aðkomu að Asparvík sbr. ábendingu landeiganda.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

8. (830). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Holtstún á Álftanesi samkvæmt 3. mgr. 41 gr. skipulaglaga nr. 123/2010. Í athugasemdafresti barst ein athugasemd um breytingu á lóðarmörkum og aðkomu sem fallist er á. Um er að ræða minnháttar tilvik sem krefst ekki endurauglýsingu tillögunar samkvæmt 4. mgr, 41. gr. skipulagslaga. Niðurstaða bæjarstjórnar skal auglýst

Bæjarráð Garðabæjar

09

17. (1832). fundur

Bæjaráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Holtstún á Álftanesi samkvæmt 3. mgr. 41 gr. skipulaglaga nr. 123/2010. Í athugasemdafresti barst ein athugasemd um breytingu á lóðarmörkum og aðkomu sem fallist er á. Um er að ræða minnháttar tilvik sem krefst ekki endurauglýsingu tillögunar samkvæmt 4. mgr, 41. gr. skipulagslaga. Niðurstaða bæjarstjórnar skal auglýst

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

8. fundur

Lagt fram að nýju, að lokinni auglýsingu, deiliskipulag fyrir Holtstún. Á fundi skipulagsnefndar 9. mars var samþykkt með vísan í 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillöguna. Auglýsingin stóð frá 26.mars til 7. maí. Alls barst 1 erindi með athugasemdum sem lögð er fram. Skipulagsnefnd leggur til að fallist verði á þær breytingar á lóðarmörkum og aðkomu sem óskað er eftir í erindinu en ósk um stækkun byggingarreits er hafnað.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

5. (827). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Holtstúns á Álftanesi. Samkvæmt heimild í 2. mgr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga er fallið frá gerð lýsingar og kynningar þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.

Bæjarráð Garðabæjar

12

10. (1825). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Holtstúns á Álftanesi. Samkvæmt heimild í 2. mgr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga er fallið frá gerð lýsingar og kynningar þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

5. fundur

Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagi Holttúns þar sem gert er ráð fyrir 4 íbúðareiningum í 2 parhúsum á milli Stekkjar og Asparvíkur og 6 íbúðareiningum við Evindarholt í einu parhúsi og raðhúslengju. Þráinn Hauksson hjá Landslagi vinnur að gerð deiliskipulagsins og kynnti hann tillöguna.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.greinar Skipulagslaga nr.123/2010. Fallið er frá gerð lýsingar og forkynningar þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 2.og3.mgr. 40.greinar sömu laga.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

14

15. (817). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði sem nær til Evindarholts, Tjarnar, Asparvíkur og Stekks og að svæðið verði nefnt Holtstún. Samþykkt er að falla frá gerð lýsingar enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalskipulagi.

Bæjarráð Garðabæjar

15

37. (1803). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði sem nær til Evindarholts, Tjarnar, Asparvíkur og Stekks og að svæðið verði nefnt Holtstún. Samþykkt er að falla frá gerð lýsingar enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalskipulagi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

11. fundur

Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf kynnti tillögu að deiliskipulagi svæðis sem nær til Eyvindarholts, Tjarnar, Asparvíkur og Stekks við Bessastaðatjörn sem hann hefur unnið að beiðni skipulagsstjóra. Tillagan gerir ráð fyrir lóðum fyrir 3 einbýlishús hjá Eyvindarholti auk þess hús sem fyrir er þar og tveimur parhúsalóðum á milli Stekkjar og Asparvíkur. Alls verður því um 7 nýjar íbúðarhúseiningar að ræða auk þeirra 4 sem fyrir eru. Tillagan gerir ráð fyrir einum aðkomuvegi fyrir byggðina sem tengist Norðurnesvegi.
Skipulagsnefnd leggur til að heiti deiliskipulagsins verði "Holtstún" eins og lagt er til að aðkomuvegurinn verði nefndur og hljóta öll hús númer við þá götu.(Holtstún 1-11).
Skiplagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd fellur frá gerð verkefnislýsingar þar sem að allar forsendur liggja fyrri í gildandi aðalskipulagi og þeirri aðalskipulagstillögu sem nú hefur verið samþykkt í skipulagsnefnd í samræmi við 2.mgr. sömu greinar.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.