Beint í efni

1. fundur

17.01.2019
Skipulagsnefnd Garðabæjar

1. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

17.01.2019

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1710244

01

Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.

Lögð fram lýsing á deiliskipulagsgerð fyrir friðland Gálgahrauns og Garðahrauns neðra.

Dagný Bjarnadóttir kynnti drög að deiliskipulaginu.

Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga.

Áður en lýsingin er send umsagnaraðilum og kynnt almenningi skal hún kynnt umhverfisnefnd og Umhverfisstofnun.

Málsnúmer 1812022

02

Garðahraun efra-Fólkvangur, deiliskipulag

Lögð fram lýsing á deiliskipulagsgerð fyrir fólkvang Garðahrauns efra.

Dagný Bjarnadóttir kynnti drög að deiliskipulaginu.

Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga.

Áður en lýsingin er send umsagnaraðilum og kynnt almenningi skal hún kynnt umhverfisnefnd og Umhverfisstofnun.

Málsnúmer 1803184

03

Rjúpnahlíð-athafnasvæði, svsk breyting, vaxtarmörk.

Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu vaxtamarka svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins sem gerir ráð fyrir því að um 20 ha svæði í Rjúpnahlíð lendi innan marka. Þar verði gert ráð fyrir athafnasvæði sem falli vel að aðliggjandi íbúðarbyggð í Kópavogi. Uppbygging athafnasvæðis er hugsað sem kostur fyrir þau fyrirtæki innan bæjarmarka sem þurfa að víkja fyrir þróun athafna og iðnaðarsvæða í blandaða byggð þar sem ráð verður gert fyrir íbúðarbyggð. Sérstaklega er horft til Lyngássvæðis í því sambandi.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með svæðisskipulagsstjóra þar sem gerð var grein fyrir tillögunni.

Tillögunni vísað til mótunarvinnu við gerð aðalskipulagbreytingar sem verður rammahluti aðalskipulags og nær til Vífilsstaðalands. Senda skal tillöguna ásamt drögum að rammahluta aðalskipulags til kynningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Málsnúmer 1811054

04

Nýibær 2, smáhýsi fyrir ferðaþjónustu.

Lögð fram öðru sinni fyrirspurn ábúenda að Nýjabæ 2 um hvort leyft yrði að reisa 3 smáhýsi fyrir ferðaþjónustu. Eitt yrði staðsett inni á lóð Nýjabæjar 2 og tvö á ódeiliskipulögðu svæði austan Garðavegar. Lögð fram umsögn höfunda deiliskipulags Garðahverfis um fyrirspurn um staðsetningu 3 smáhýsa fyrir ferðaþjónustu á umráðasvæði Nýjabæjar. Í umsögn kemur fram að færa megi rök fyrir því að staðsetja smáhýsi inni á lóð Nýjabæjar 2 en ekki er tekin afstaða til staðsetningu smáhýsa utan deiliskipulags. Svar: Með vísan í markmið deiliskipulags Garðahverfis og nýlegrar niðurstöðu nefndarinnar í málum sem lutu að deiliskipulagi Garðahverfis er svar nefndarinnar neikvætt.

Málsnúmer 1711067

05

Brekkuás 7-Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að hækkun gólfkóta íbúðarhúss að Brekkuás 7. Eigendur Brekkuáss 5 og 9 hafa staðfest að þeir geri ekki athugsemd við tillöguna. Tillagan hefur ekki áhrif á hámarkshæð hússins. Ef einnig liggur fyrir staðfesting eigenda Brúnáss 8, 10, 12 og 14 um að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að vikið verði frá umræddu ákvæði deiliskipulags við veitingu byggingarleyfis.