Nýibær 2, smáhýsi fyrir ferðaþjónustu.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. (842). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn ábúenda að Nýjabæ um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna smáhýsa við Nýjabæ ásamt því að hafna staðsetningu smáhýsa á jörðinni utan deiliskipulagsvæðisins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
3. (1864.). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn ábúenda að Nýjabæ um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna smáhýsa við Nýjabæ ásamt því að hafna staðsetningu smáhýsa á jörðinni utan deiliskipulagsvæðisins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Lögð fram öðru sinni fyrirspurn ábúenda að Nýjabæ 2 um hvort leyft yrði að reisa 3 smáhýsi fyrir ferðaþjónustu. Eitt yrði staðsett inni á lóð Nýjabæjar 2 og tvö á ódeiliskipulögðu svæði austan Garðavegar. Lögð fram umsögn höfunda deiliskipulags Garðahverfis um fyrirspurn um staðsetningu 3 smáhýsa fyrir ferðaþjónustu á umráðasvæði Nýjabæjar. Í umsögn kemur fram að færa megi rök fyrir því að staðsetja smáhýsi inni á lóð Nýjabæjar 2 en ekki er tekin afstaða til staðsetningu smáhýsa utan deiliskipulags. Svar: Með vísan í markmið deiliskipulags Garðahverfis og nýlegrar niðurstöðu nefndarinnar í málum sem lutu að deiliskipulagi Garðahverfis er svar nefndarinnar neikvætt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
14. fundur
Lögð fram fyrirspurn eigenda Nýjabæjar um staðsetningu þriggja smáhýsa. 1 hús yrði staðsett inni á lóð Nýjabæjar 2 og 2 austan Garðavegar á svæði sem er á forræði Nýjabæjar 2. Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.