Beint í efni

Rjúpnahlíð-athafnasvæði, svsk breyting, vaxtarmörk.

Málsnúmer 1803184

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (842). fundur

Gunnar Einarsson kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir hugmyndum að baki tillögu um breytingu á legu vaxtarmarka svæðisskipulags í Rjúpnahlíð.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að farið verði fram á við svæðisskipulagsnefnd að hafin verði vinna við gerð tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar legu vaxtarmarka í Rjúpnahlíð með það að markmiði að fyrirhugað athafnasvæði um 20 ha falli innan vaxtarmarka. Samhliða breytingu á svæðisskipulagi verður unnið að gerð rammahluta aðalskipulags sem nær til Vífilsstaðalands og Hnoðraholts.

Bæjarráð Garðabæjar

02

3. (1864.). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að farið verði fram á við svæðisskipulagsnefnd að hafin verði vinna við gerð tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar legu vaxtarmarka í Rjúpnahlíð með það að markmiði að fyrirhugað athafnasvæði um 20 ha falli innan vaxtarmarka. Samhliða breytingu á svæðisskipulagi verður unnið að gerð rammahluta aðalskipulags sem nær til Vífilsstaðalands og Hnoðraholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu vaxtamarka svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins sem gerir ráð fyrir því að um 20 ha svæði í Rjúpnahlíð lendi innan marka. Þar verði gert ráð fyrir athafnasvæði sem falli vel að aðliggjandi íbúðarbyggð í Kópavogi. Uppbygging athafnasvæðis er hugsað sem kostur fyrir þau fyrirtæki innan bæjarmarka sem þurfa að víkja fyrir þróun athafna og iðnaðarsvæða í blandaða byggð þar sem ráð verður gert fyrir íbúðarbyggð. Sérstaklega er horft til Lyngássvæðis í því sambandi.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með svæðisskipulagsstjóra þar sem gerð var grein fyrir tillögunni.
Tillögunni vísað til mótunarvinnu við gerð aðalskipulagbreytingar sem verður rammahluti aðalskipulags og nær til Vífilsstaðalands. Senda skal tillöguna ásamt drögum að rammahluta aðalskipulags til kynningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

7. (829). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga um athafnasvæði á Rjúpnahæð - breyting á vaxtamörkum samkvæmt svæðisskipulagi verði vísað til kynningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð Garðabæjar

05

14. (1829). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga um athafnasvæði á Rjúpnahæð - breyting á vaxtamörkum samkvæmt svæðisskipulagi verði vísað til kynningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu svæðisskipulags, Höfuðborgarsvæðið 2040 þar sem gert verður ráð fyrir stækkun breytingu á vaxtamörkum byggðar í Rjúpnahæð og Rjúpnadal. Samkvæmt tillögu yrðu mörkin frá bæjarmörkum efst á Smalaholti að Elliðavatnsvegi á móts við aðkomu að hesthúsabyggð á Kjóavöllum og bættust þannig 20 ha við það svæði sem er innan marka. Ástæðan er sú ósk Garðabæjar að svæði í sunnanverðri Rjúpnahæð og austurhluta Rjúpnadals yrðu skilgreind sem atvinnusvæði í aðalskipulagi. Tillagan kallar á breytingu Aðalskipulags og mælir nefndin með því að sú vinna sem fram fer við gerð rammahluta Aðalskipulags í Vífilsstaðalandi geri ráð fyrir umræddu atvinnusvæði.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð Garðabæjar

07

10. (1825). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa til skipulagsnefndar að vinna að tillögu til svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags vegna athafnasvæðis á Rjúpnahæð.